Er það gagnkvæmt?

Ef það er rétt sem þessi breski hvítflibbaglæpalögmaður heldur fram að ekki sé hægt að handtaka grunaðan íslenskan bankaræningja í Bretlandi þá hlýtur slíkt að vera gagnkvæmt milli þjóðanna. Ísland hlýtur því að geta verið skálkaskjól fyrir grunaða breska glæpamenn, sem reikna má með að komi hingað í framhaldinu, hvort sem þjóðin vill það eða ekki. - Ljótt er, ef satt er......og aumingja Siggi hann þorir ekki heim.
mbl.is Sigurður ræður breskan lögmann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eignir eða þýfi?

Nú hriktir án efa í IKEA innréttingunum á Manhattan. Í fréttinni er talað um eignir. Það hlýtur að orka tvímælis núna þegar búið er að upplýsa um allt sukkið og undanskotin frá bönkunum í eigin þágu. Það er spurning hvenær rétti tímapunkturinn er að tala um þýfi en eflaust má færa jafn sterk rök fyrir því og að kalla þetta eignir.
mbl.is Guardian: Búið að birta stefnuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi "virtu" endurskoðunarfyrirtæki

Athyglin í öllu þessa bankasukki hefur verið á opinberu eftirliti auk útrásarskúrkanna sjálfra. Nú ber nýtt við því eitt af endurskoðunarfyrirtækjunum með útlendu nöfnunum, sem hafa verið áberandi hér á landi, er nú sakað um svik eins og kemur fram í fréttinni:

PricewaterhouseCoopers tók þátt í svikum

Glitnir höfðar jafnframt mál gegn PricewaterhouseCoopers, fyrrum endurskoðendum bankans, fyrir að greiða fyrir og taka þátt í að dylja þau sviksamlegu viðskipti sem Jón Ásgeir og félagar komu í kring og sem að endingu leiddu til falls bankans í október 2008.

Hvernig átti opinbera eftirlitið að geta sinnt störfum sínum, ef það reynist rétt sem þarna stendur, að þessi "virtu" eftirlitsfyrirtæki hafi verið handbendi fjárglæpamannanna?


mbl.is Óska kyrrsetningar eigna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyjafjallajökull slappur miðað við bankaræningjana

Þetta eru ekki háar tölur miðað við það sem við höfum verið að heyra í fréttum um þjófnað úr bankakerfinu. Eyjafjallajökull er ekki hálfdrættingur á við bankaræningjanna hvað skaðsemi varðar.
mbl.is 400-600 milljóna tjón vegna gossins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyða þarf þessari óvissu

Það væri nú eftir öðru að eitthvert kerfisfrumvarp verði til þess að fjöldi fólks verði án atvinnu í sumar ef hvalveiðar verða ekki eins og til hefur staðið. Á síðustu hvalvertíð störfuðu um 50 manns á Akranesi á vöktum í þrjá mánuði við vinnslu hvalkjötsins, annar eins fjöldi vann í hvalstöðinni í Hvalfirði og tveir hvalbátar voru gerðir út með um 30 manna áhöfn. Fyrir utan þetta hafði fjöldi iðnaðarmanna og annarra vinnu af veiðum og vinnslu.

Búið er að gefa út að leyft verði að veiða jafn marga hvali nú og í fyrra. Ríkisstjórnin þarf því að taka af skarið nú og eyða allri óvissu. Ríkisstjórn sem hefur áhyggjur af atvinnuleysi og er að gera ráðstafanir vegna þess getur ekki látið slík atvinnutækifæri og háar tekjur framhjá sér fara.


mbl.is Lagafrumvarp setur veiðarnar í uppnám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Man ekki og veit ekki

Annað hvort er karlinn svona gleyminn eða þá að veruleikafirringin er algjör. Hann man ekki og veit ekki. Það mátti alls ekki vera Finni fjötur um fót að hafa tengst stjórnmálaflokki, sagði hann. Það var nú engin smá tenging; ráðherra og síðan bankastjóri Seðlabankans.

Afneitun Halldórs í Kastljósi var ótrúleg.


mbl.is Kannast ekki við handstýringu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig flug er það?

Hef oft velt því fyrir mér hvernig flug það er sem liggur niðri. Hef alltaf haldið að til að fljúga þurfi að komast á loft. Ef það er ekki hægt þá er ekkert flug.
mbl.is Flug liggur niðri í Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reiknilíkön Hafró ganga ekki upp

Það er hreint með ólíkindum hve lengi trúarbrögð "fiskifræðinganna" á Hafró eiga að ráða. Sjórinn er fullur af fiski og reynslan sýnir að þá þarf að veiða til að viðhalda og auka við fiskistofna. Þetta hefur til dæmis berlega komið í ljós í Barentshafi síðustu tíu ár. Friðunarstefna, eins og hér er í gangi, leiðir eingöngu til hruns stofna.

Nú er kominn tími til að þjóðkjörnir fulltrúa fólksins á Alþingi taki af skarið og heimili stórauknar veiðar. Það gengur ekki að fiskistofnarnir séu ekki nýttir af skynsemi á meðan þúsundir manna eru á atvinnuleysisskrá. Reiknilíkön Hafró hafa ekki gengið upp í áratugi og gera það ekki í framtíðinni. Þau eru byggð á röngum forsendum.


mbl.is Saxast á þorskkvótann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju ekki í járnum?

Eins og sjá má á myndinni með þessari frétt gengur sakborningurinn bara um með hendur á pung. Af hverju er hann ekki í járnum eins og venja er með fanga sem fluttir eru milli húsa?
mbl.is Hreiðar Már í skýrslutöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er kannski meira til af loðnunni?

Kannski er það bara svo með loðnuna eins og fleiri fiska við Ísland að mun meira er til af henni en fræðingar Hafró telja. Að vísu man ég eftir loðnugöngum inn á Borgarfjörð með norðanverðu Akranesi á níunda áratugnum og voru þá loðnubátar við veiðar rétt norður af Akranesi. Undanfarið hefur Breiðafjörðurinn verið fullur af síld sem ekki hefur mátt veiða. Þangað hafa makríll og skötuselur líka gengið í stórum stíl. Þorskur hefur mokveiðst og svo mikið að flestir bátar voru orðnir kvótalausir á miðri vetrarvertíð.

Það er allt breytingum háð í lífríki hafsins og þar hafa greinilega orðið miklar og jákvæðar sviptingar undanfarin ár. Samt er það ennþá svo að megnið af þessum fiski syndir framhjá reiknilíkönum Hafró, sem heldur sig við ofurtakmarkanir í veiðiráðgjöf.


mbl.is Loðna gekk inn í Borgarfjörð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband