Reiknilíkön Hafró ganga ekki upp

Það er hreint með ólíkindum hve lengi trúarbrögð "fiskifræðinganna" á Hafró eiga að ráða. Sjórinn er fullur af fiski og reynslan sýnir að þá þarf að veiða til að viðhalda og auka við fiskistofna. Þetta hefur til dæmis berlega komið í ljós í Barentshafi síðustu tíu ár. Friðunarstefna, eins og hér er í gangi, leiðir eingöngu til hruns stofna.

Nú er kominn tími til að þjóðkjörnir fulltrúa fólksins á Alþingi taki af skarið og heimili stórauknar veiðar. Það gengur ekki að fiskistofnarnir séu ekki nýttir af skynsemi á meðan þúsundir manna eru á atvinnuleysisskrá. Reiknilíkön Hafró hafa ekki gengið upp í áratugi og gera það ekki í framtíðinni. Þau eru byggð á röngum forsendum.


mbl.is Saxast á þorskkvótann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Af hverju er alltaf verið að tengja saman SKULDIR sjávarútvegsins og kvótakerfið??? Er það vegna þess að stór hluti skuldanna er með veði í óveiddum fiski??? Samkvæmt fiskveiðistjórnunarlögunum er fiskurinn í sjónum SAMEIGN Íslensku þjóðarinnar og því er ÓHEIMILT samkvæmt lögum að veðsetja eitthvað sem maður er EKKIeigandi að.  Ég er ansi hræddur um að ekki yrði samþykkt að ég myndi veðsetja hús nágranna míns.  Hafi kvóti verið settur að veði fyrir einhverjum skuldum þá verða lánadrottnar bara að bíta í það súra epli að þarna er um VÍKJANDIskuldir að ræða og fari sjágrútvegsfyrirtæki á hausinn, sem eru með þannig skuldir, fara kröfuhafar bara AFTAST í röðina með sínar kröfur.  Svo einfalt er það.

Jóhann Elíasson, 7.5.2010 kl. 09:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband