Bloggfærslur mánaðarins, október 2010
Af hverju eru innfluttar mjólkurvörur ódýrari?
31.10.2010 | 12:59
Nú þegar er mikið af mjólkurvörum flutt inn, meðal annars ís. Tók eftir því um daginn að innfluttir íspinnar og istoppar eru miklu ódýrari en þeir íslensku og það þrátt fyrir tolla og óhagstætt gengi fyrir innflutning.
Ef íslenskar mjólkurvörur eru svona góðar og hagkvæmar hlýtur að vera lag að flytja þær út. Norðmenn kunna t.d. vel að meta skyrið sem rokselst þar núna en það er framleitt í Noregi eftir íslenskri uppskrift.
Það er margt bogið við íslenskt landbúnaðarkerfi sem virðist vera bæði bændum og neytendum í óhag. Líklega myndu engir hér á landi hagnast eins vel á aðild að ESB og bændur
Áfram verði tollvernd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kalmanstunga
31.10.2010 | 09:24
Það vekur athygli við lestur þessarar fréttar að bæjarnafnið Kalmanstunga er alltaf skrifað með tveimur n-um. Þetta bæjarnafn er eitt margra örnefna sem á ættir sínar að rekja til írskra landnámsmanna. Þau má t.d. finna í Borgarfirði og á Akranesi. Öll eru þau skrifuð með einu n-i. Dæmi um þetta, auk Kalmanstungu, eru. Kalmansvík á Akranesi, Bekansstaðir og Kjaransstaðir.
Varðandi efni fréttarinnar er slæmt til þess að vita að dýrbítum fjölgi. Það kemur ekki aðeins niður á sauðfénu heldur er refurinn stórtækur í fuglavarpi ásamt minknum.
Dýrbítur á ferð í Borgarfirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Klúðursleg skrif
28.10.2010 | 22:45
Full ástæða er til að taka undir með Íslenskri málnefnd. Nú er það hins vegar spurning hvort sá sem skrifaði innganginn að þessari frétt kemur úr háskólasamfélaginu. Í það minnsta er þetta klúðurslega skrifað og alls ekki á góðri íslensku:
Íslensk málnefnd óttast að ef ekki verði breyting á hvað varðar kennslu á íslensku í íslensku háskólasamfélagi þar sem námskeiðum og heilum námsbrautum á ensku fjölgar blasir við að verulega mun þá þrengt að íslenskri tungu í háskólasamfélaginu á Íslandi.
Óttast um íslenska tungu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hárrétt hjá Jóni.
19.10.2010 | 18:02
Auðvitað rétt hjá Jóni. Það kemur allt til greina. Borgarstjóri er bara framkvæmdastjóri.
Framkvæmdastjóri Reykjavíkurhrepps þarf ekkert að vera kjörinn af fólkinu frekar en framkvæmdastjórar annarra hreppa landsins.
Útilokar ekki að Dagur verði borgarstjóri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
HB Grandi veðjaði rétt
19.10.2010 | 17:08
Það sem HB Grandi hefur verið að gera á Vopnafirði er hreint út sagt frábært. Þar hefur öll vinnsla á uppsjávarfiski verið endurbætt og gerð svo vel úr garði að úr verða bestu afurðir. Þeir HB Granda menn veðjuðu á rétt byggðarlag því Vopnfirðingar kunna sitt fag þegar kemur að vinnslu sjávarafurða.
Nú bíð ég eftir að fá heitreyktan makríl frá Vopnafirði. Það yrði toppurinn.
Vinnslumet á Vopnafirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú leggja þeir línurnar
19.10.2010 | 13:21
Skuldir fyrnist á tveimur árum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gott hjá Húsvíkingum
15.10.2010 | 14:31
Húsvíkingar sækja um starf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Framsóknarmaðurinn Jón
12.10.2010 | 15:48
Bjarni ráðinn upplýsingafulltrúi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bjarni Ben er misskilningur
11.10.2010 | 17:23
Misskilningur um fundarboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Allir vilja að börnin verði Skagamenn
11.10.2010 | 16:13
Fæðingamet á Akranesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)