Um hvað á að greiða atkvæði?

Engan þarf að undra að þessar undirskriftir veki athygli. Hér á landi er í raun enginn ánægður með þetta samkomulag um að greiða skuldir óreiðumanna eins og Davíð sagði um árið. Hvaða kosti eigum við hins vegar og hvernig á að framkvæma þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta mál? Á að spyrja; ertu með eða á móti Icesave samningi? - Málið er ekki svo einfalt að vera með eða á móti. Við þurfum að eiga aðra kosti og hverjir eru þeir? - Þetta er búið að ræða á þingi í eitt ár og er orðin ótrúleg steypa.
mbl.is Undirskriftir gegn Icesave vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef það vefst eitthvað fyrir þér eftir alla umræðuna, þá á að bjóða væntanlegum greiðendum Icesave skuldanna upp á það að segja til um það hvort þeir kæri sig um að borga reikninginn.  Það gleymdist nefnilega að fá hjá þeim sjálfsskuldarábyrgð þegar Björgúlfur tók lánið.

Gísli Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 3.1.2010 kl. 10:05

2 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Það er nú ekki flókið.

Spurt verður eitthvað á þessa leið: Á að samþykkja breytt frumvarp um Icesave eða halda í þá fyrirvara sem voru samþykktir í sumar þverpólitískt?
Já eða Nei

Ef þjóðin fellir samninginn þá hafa bretar og hollendingar enn möguleika á því að samþykkja fyrirvarana frá því í sumar en ef þeir gera það ekki þá er þjóðin til í þann slag sem þarf.

Carl Jóhann Granz, 3.1.2010 kl. 10:34

3 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Það er rétt hjá þér Haraldur að það er búið að þvæla um þetta mál í alltof langan tíma, án þess að ræða hin eiginlegu RÖK í þessum Icesave skuldum Landsbankans.

Svo er annað. Þekkt er að hræðsla lokar yðulega fyrir heilbrigða hugsun og athygli.  Spurningin er hvort sú sé ástæðan fyrir því að ekkert er gert með öll þau rök sem heimskunnir færðimenn á þessu sviði hafa bent þjóðinni á, þar á meðal dómari í mannréttindadómstól Evrópu.  Eru stjórnmálamenn og þjóðin virkilega orðin svo illa stöd, hvað heilbrigða hugsun varðar, að engin heilbrigð röksemd nái að festa rætur í því skelfingarflóði sem einkennt hefur óttakeyrslu stjórnvalda?

Guðbjörn Jónsson, 3.1.2010 kl. 10:38

4 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það er líklegt, frændi sæll, að Bretar, Hollendigar og aðrar þjóðir átti sig kannski á því í hvaða stöðu er verið að setja okkur með þessum Icesave klafa. Það gæti gerst ef forseti vor skrifar ekki undir. Það eitt er tilraunarinnar virði....

Ómar Bjarki Smárason, 3.1.2010 kl. 22:49

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Svo er spurning hvort eitthvað verður til að greiða atkvæði um ef forseti skrifar ekki undir. Eflaust segja þá Bretar og Hollendingar upp þessum samningi svo ekki verður þjóðaratkvæðagreiðsla um hann.

Haraldur Bjarnason, 4.1.2010 kl. 08:29

6 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Við skulum vona að það verði niðurstaðan Haraldur að Bretar og Hollendingar segi þessum samningi hreinlega upp.

Carl Jóhann Granz, 4.1.2010 kl. 08:56

7 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Þá má semja upp á nýtt og það á réttlátari hátt. Við förum í orustur til að vinna stríðið.....

Ómar Bjarki Smárason, 4.1.2010 kl. 20:11

8 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sá misskilningur virðist þrálátur að þjóðin vilji ekki borga, en það er auðvitað ekki svo. Það á bara að hafna ÞESSUM samningi. 70% þjóðarinnar telur að ná megi betri samninngi.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.1.2010 kl. 23:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband