Fært úr einum vasa í annan

Þetta er eftir öðru. Þarna sjá forsvarsmenn ríkisstofnanna sér leik á borði að spara fyrir viðkomandi stofnun en láta ríkið borga samt. Þetta er glöggt dæmi um þá vitleysu sem ríkt hefur í rekstri ríkisstofnana í áratugi. Þar er stöðugt verið að færa á milli vasa innan ríkissjóðs sem borgar alltaf að lokum.
mbl.is Ríkisstofnanir láta Atvinnuleysistryggingarsjóð greiða sparnaðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Nú, ég hélt að atvinnuleysistryggingasjóður væri fjármagnaður með tryggingagjaldinu sem kemur úr vasa launagreiðenda, en ekki ríkisins.  Ljótt ef satt reynist.

Sigríður Jósefsdóttir, 13.11.2009 kl. 14:30

2 identicon

Hehe já Sjálfstæðismenn standa bara í þeirri trú að þetta séu ALLT þeirra peningar... auk þess þó ekki væri þá tel ég að atvinnuleysisbætur séu töluvert lægri en laun hjá ríkisstarfsmönnum..

Skúli Þór Sveinsson (IP-tala skráð) 13.11.2009 kl. 14:39

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Það er rétt Sigríður að atvinnuleysistryggingasjóður er fjármagnaður með tryggingagjaldinu sem er skattur sem fer til ríkisins svo framarlega að hann dugi fyrir öllum bótagreiðslum. Skúli, burtséð frá því sem þú segir um sjálfstæðismenn því ég skil ekki samhengið, þá eru atvinnuleysisbætur eflaust lægri en laun flestra ríkisstarfsmanna. Forstöðumennirnir segja hins vegar við Vinnumálastofnun að þeir verði að segja upp fólki. Vinnumálastofnun greiðir þá viðkomandi stofnun það sem nemur atvinnuleysisbótum og stofnunin borgar launamanninum mismuninn. Þannig sparar viðkomandi stofnun en ríkið greiðir allt þegar upp er staðið.

Haraldur Bjarnason, 13.11.2009 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband