Gjöld innheimt á fölskum forsendum

Það var ekki að ástæðulausu að forsvarsmenn RÚV voru alltaf mótfallnir því að taka upp nefskatt og vildu halda í afnotagjöldin. Þeir höfðu fyrir augunum dæmi um vegagjald og fleiri gjöld sem ekki skiluðu sér í þau verkefni sem þau áttu að fara. Nú er sama að gerast með útvarpsgjaldið, hluti þess á að fara beint í ríkissjóð en ekki til RÚV. Skömm er, ef rétt er. Þetta er að innheimta gjöld á fölskum forsendum.

Hvernig var annars með jeppann sem  Palli Magg. var með? Er búið að selja hann? Palli getur séð um að koma sér í vinnuna sjálfur eins og aðrir starfsmenn RÚV. Þar gæti RÚV sparað nokkrar krónur.


mbl.is Segir tekjur Rúv lækka - ekki hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þórðarson

"Hvernig var annars með jeppann sem  Palli Magg. var með?"

Veistu ekki að þeir sem eru með hæstu launin eiga af einhverjum ástæðum erfiðast með að ná endum saman? Þess vegna verður að gefa þeim bíl undir rassinn og greiða ýmsan kostnað fyrir þá.

Annars gæti RÚV sparað stórfé með því að leggja innheimtudeildina niður. Hún skilar engu til þjóðarbúsins.

Hörður Þórðarson, 2.10.2009 kl. 18:32

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Er ekki búið að leggja hana niður? Það held ég.

Haraldur Bjarnason, 2.10.2009 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband