Útrásarbanki?

Hvaða heiti fær hann þá? Hét hann ekki Íslandsbanki, svo Glitnir og síðan Íslandsbanki? Er þetta ekki bankinn sem einu sinni var Verslunarbankinn, eða Alþýðubankinn eða jafnvel Útvegsbanki. Kannski heitir hann Útrásarbanki næst.
mbl.is Nýr Íslandsbanki innan skamms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég sakna gamla góða alþýðubankans..

Óskar Þorkelsson, 19.7.2009 kl. 22:58

2 identicon

Nei ætli verði ekki frekar notað eitthvað af þessum gömlu nöfnum, og einnig gömlu viðskiptagildin tekinn aftur upp þar sem banki lánar ekki meira en hann á!

Andrir (IP-tala skráð) 19.7.2009 kl. 23:05

3 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það er rétt hjá þér, frændi. Bankinn hefur úr mörgum nöfnum að velja og eitt í viðbót við listann þinn var Iðnaðarbankinn sálugi, en þetta gekk á sínum tíma allt inn í Íslandsbanka.

Ég vann á sínum tíma í um 1 ár í Útvegsbankanum. Á þeim tímum fengu starfsmenn ekki lán í bankanum sem þeir unnu í. Bankarnir væru líklega betur staddir í dag ef þeirri reglu hefði verið fylgt áfram....

Ómar Bjarki Smárason, 20.7.2009 kl. 00:31

4 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Ég tek undir með þér Ómar Bjarki. Vann sjálfur í Samvinnubankanum sáluga um þriggja ára skeið.Við fengum ekki lán í bankanum sem við unnum í því eins og bankastjórinn sagði."Við megum ekki lána sjálfum okkur."

Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar.

Þráinn Jökull Elísson, 20.7.2009 kl. 01:27

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Veit af þessu strákar þótt ég hafi aldrei unnið í banka sjálfur. Siðferðið í bankamálum var annað á tímum ríkisbankanna og vonandi kemur það aftur núna þegar búið er að skrúfa fyrir óhefta græðgistefnu sjálfgræðisstefnunnar. ( p.s. Davíð og Matthildingar forðum kölluðu Sjálfstæðisflokkinn; Sjáflgræðisflokkinn.)

Haraldur Bjarnason, 20.7.2009 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband