Hvar er frelsi einstaklingsins?

Hafa ekki forystumenn Sjálfstæðisflokksins alltaf sagt að þar sé rúm fyrir ólikar skoðanir. Án efa eru stór hluti kjósenda flokksins sammála því að kannað sé hvaða möguleika þjóðin á innan ESB. Bjarni er hins vegar trúr kvótaklíkunni úr LÍÚ og sérhagsmunagæslu flokkseigenda. Þorgerður Katrín kemur úr grasrótinni og lætur ekki segja sér fyrir verkum. Hún veit líka upp á sig skömmina í bankaklúðrinu. Hvar er allt frelsi einstaklingsins núna, Bjarni?
mbl.is Bjarni: Óheppilegt að ekki ríkir einhugur í forystunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ein reich.. ein folk.. ein kopfh ;)

Óskar Þorkelsson, 17.7.2009 kl. 20:05

2 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Genau!

Jón Halldór Guðmundsson, 17.7.2009 kl. 20:21

3 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Hefur það ekki verið nokkuð ljóst að Þorgerður Katrín er á leið í Samfylkinguna, enda býr hún í Hafnarfirði.....

Ómar Bjarki Smárason, 17.7.2009 kl. 21:09

4 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ég hlustaði á Bjarna og hann sagði óheppilegt að ekki ríkti einhugur í forystunni, en jafnframt studdi hann Þorgerði. Það hefur lengi legið fyrir að Þorgerður styðji aðildarumsókn, og auðvitað átti hún að greiða atkvæði í samræmi við það.

Svo sá ég viðtal við Jóhönnu Sigurðardóttur þar sem mjög vel var hægt að það hafi verið hún sem hótaði Ásmundi Einari Daðasyni þegar hann vildi leggja umsóknarbeiðni í ESB undir þjóðaratkvæði. Fannst þér það ekki vera sérlega lýðræðislegt? Þú vars búinn að skrifa um þetta Haraldur og fordæma. Langar sérlega mikið til þess að lesa færsluna. Ertu ekki til í að senda mér linkinn.

Sigurður Þorsteinsson, 18.7.2009 kl. 21:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband