Sumardekkin strax!!

Enn og aftur! Setjið sumardekkin undir. Vetrardekkin áttu að fara undan bílunum 15. apríl eins og Umferðarstofa hefur marg tuggið ofan í landsmenn. Sumardekkin undir strax! - Í lagafarganinu hefur gleymst að bílar eru líka notaðir til að fara milli landshluta. Ekki bara milli hverfa á láglendi.
mbl.is Víða vetrarfærð á landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

.. það stendur líka í umferðarlögunum að maður eigi að haga akstri eftir aðstæðum.. ef það er vetrarfærð og þú ert á sumardekkjum þá .. vertu heima og drekktu kakó... með viský út í ;)

Óskar Þorkelsson, 9.5.2009 kl. 11:55

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Óskar þú mátt vera á vetrardekkjum samkvæmt þessum lögum ef þú þarft að fara um fjallvegi en hins vegar er hægt að sekta þig fyrir að aka innan bæjar á nöglum. Þú þarft sem sagt að ákveða það 15. apríl hvort þú ætlar norður til Akureyrar austur eða vestur á land. Hins vegar er hitt auðvitað mikið skárra sem þú nefnir síðast. Nema kakó er vont.

Haraldur Bjarnason, 9.5.2009 kl. 12:00

3 Smámynd: Eyrún Huld Haraldsdóttir

Þetta fer alltaf eftir aðstæðum. Engan æsing. Lögreglan hér norðan heiða sektar t.d. ekki á meðan tíðin er eins og hún er í dag. Þetta á fyrst og fremt um höfuðborgina og nágrenni...þar ferðast minnihlutinn á milli landshluta hvort sem er...

Eyrún Huld Haraldsdóttir, 9.5.2009 kl. 17:12

4 identicon

Það er svolítið varhugavert, að láta frétt sem þessa vera óbreytta svo lengi sem raun ber vitni. Þessi lýsing passaði kanski kl 10 í morgun. Klukkan fimm fór ég yfir Holtavörðuheiði og það var ekki snjókorn á heiðinn, sól og blíðskaparveður. Sömu sögu að segja af Öxnadalsheiði, sem ég fór um, um tvö leytið.

kolbrún Bára (IP-tala skráð) 9.5.2009 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband