Er krummi ránfugl?

Það er greinilegt að einhverjir í Reykjavíkurhreppi eru ekki alltof hrifnir af þeim ágæta fugli sem krummi er. Hrafninn er skemmtilegur fugl og klókur. Mér finnst það líka illa gert af Mogganum að kalla krumma ránfugl. Hann er og hefur alltaf verið spörfugl. Auðvitað þarf hann að borða eins og aðrir og einhvers staðar verður hann að hnupla því en aðrir fuglar, menn og dýr gera það líka án þess að fá á sig ránfuglsstimpil.


mbl.is Steypt undan krumma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ljótt er ef fólk getur ekki virt einn mest áberandi fugl íslenkrar fuglaflóru.. en ránfugl er krummi sko alls ekki heldur er hann bara spörfugl.. að vísu svolítið stór :) og ferlega gáfaður og skemmtilegur

Óskar Þorkelsson, 22.4.2009 kl. 12:24

2 Smámynd: Rögnvaldur Þór Óskarsson

Margir halda að krummi sé ránfugl vegna þess að hann er eggjaþjófur og á það til að japla á einum og einum unga, auk þess sem hann hjálpar afvelta búfénaði hraðri ferð í eilífðina.

Hrafninn er skemmtilegur og verulega flottur spörfugl.

Á Ísafirði segir hann frá berjasprettu. Krummi er vanur að sitja á stjórnsýsluhúsinu og skíta á gangstéttina fyrir neðan sem flestir í húsinu ganga um. Í ágústmánuði kíkir fólk eftir litnum á skítnum og þegar hann er orðin vel blár þá er tími til að fara í ber.

Rögnvaldur Þór Óskarsson, 22.4.2009 kl. 13:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband