Hagsmunagæslumennirnir af stað.

Eru hagsmunagæslumenn útrásargæjanna nú farnir að tortryggja störf Evu Joly? Manneskjan sagði einfaldlega að fara þyrfti með þessi mál eins og sakamál, enda má það vera hverjum manni ljóst að nægar grunnsemdir eru fyrir hendi til að gera það. Þeir verða örugglega nægir í lögmannastétt sem eru tilbúnir að vaða skít upp að öxlum til að verja þessa menn sem komu þjóðinni á hausinn. Íslensk lögmannastétt er því miður með marga skítuga leppa innanborðs.
mbl.is Joly fyrst og fremst ráðgjafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Þá er það spurning Jóhanna, að ef þessi norsk-franska kona er vanhæf, hvort einhver íslenskur lögfræðingur er hæfur. Þeir eru allir meira eða minna tengdir þessum gaurum sem um verður fjallað. Ef ekki einstaklingunum þá einhverjum fyrirtækjum þeim tengdum.

Haraldur Bjarnason, 16.4.2009 kl. 08:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband