Í fullkomnu samræmi við siðferði Sjálfstæðisflokksins

Landsbankinn virðist hafa styrkt stjórnmálaflokka um 5 milljónir á línuna. Að minnsta kosti hefur komið fram að styrkur bankans til Samfylkingarinnar 2006 nam þeirri upphæð. Ekki er óliklegt að aðrir hafi fengið sama. Þetta hefur átt að vera sýnilega upphæðin. Svo kom til kasta Guðlaugs Þórs, sem farið hefur út og suður í játningum og neitunum, þá bættust 25 milljónirnar við. Er til einhvers að krefjast þess að einhver í Sjálfstæðisflokknum segi af sér? Það held ég ekki. Þetta er allt fullkomlega í samræmi við siðferði Sjálfstæðisflokksins í gegnum tíðina.
mbl.is Landsbankinn veitti 2 styrki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Alveg rétt Halli þetta er Sjálfstæðisflokkurinn í hnotskurn. En það er verst að ennþá er til fólk sem trúir því að Sjálfstæðisflokkurinn sé fyrir þá, hinn almenna launþega sem ekki eru af einhverjum "ættum". Getur trúin á Sjálfstæðisflokkinn verið eitthvað í líkingu við M-trú?

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 10.4.2009 kl. 09:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband