Svo rífa Norðmenn kjaft

Þetta er eftir sjávarútvegsspekúlöntum Evrópusambandsins og Norðmanna. Skrítið að Færeyingar skuli haga sér eins. Svo koma Norðmenn rífandi kjaft og segja Íslendinga stunda rányrkju, hóta að kaupa ekki mjöl af Íslendingum, sem þeir geta þó ekki verið án, vegna stórfellds laxeldis. Auðvitað veiðum við makrílinn í íslenskri lögsögu eins og aðrar fisktegundir sem eru farnar að venja komu sínar í íslensku lögsöguna með auknum sjávarhita. Sérstaklega má þar nefna skötuselinn sem gengur orðið upp undir fjörur hér við land.
mbl.is Svara ekki boði um makrílfund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessi framkoma Norðmanna undirstrikar það bara hvernig þeir haga sér gagnvart minni þjóðum.  Íslendingar hafa aldrei riðið feitum hesti eftir samskipti sín við Norðmenn.

Jóhann Elíasson, 9.4.2009 kl. 15:20

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hárrétt Jói. Svona hafa þeir látið út af síld og loðnu þessir eiginhagsmunaseggir. Í samskiptum við Íslendinga í sjávarútvegsmálum hafa Norðmenn alltaf verið úlfar í sauðagæru. Svona verður þetta í olíunni á Drekasvæðinu líka.

Haraldur Bjarnason, 9.4.2009 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband