Hverjum er hann að þjóna?

Maður gæti haldið að Gylfi sé orðinn aðstoðarmaður Vilhjálms Egilssonar og svo segir hann nánast það sama um stöðu fyrirtækja og Arnar Sigurmundsson, sagði í fréttum í gær. Auðvitað þurfa fyrirtækin að ganga en það er svívirðileg framkoma að borga arð og skerða á sama tíma laun starfsmanna. Auk þess eru þessi stærstu sjávarútvegsfyrirtæki ríkisstyrkt. Hverjum er Gylfi að þjóna?
mbl.is Gylfi: Rétt að semja um frestun launahækkana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

slæmt verður það ef fyritækin þurfa að segja upp fólkinu, það eru nú ekki öll fyrirtæki eins og hb grandi ég held aðflest fyrirtækin eru að reyna að lifa af þessa auðmannakreppu  

 johanna og steingrimur eru nú ekki að gera neitt til að bjarga heimilunum

sorry jú banna nektardans, það bjargar svo mikið heimilunum. og tuða svo yfir einhverjum arði

eiga þau ekki frekar að segja okkur hvert við erum að fara og hvernig

elisabet (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 14:31

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Lestu það sem ég skrifaði elisabet. Við erum víðast hvar sammála. Hins vegar má bæta við að það eru víðar sparnaðarleiðir hjá fyrirtækjum en í launum starfsfólks. Fyrirtæki án starfsfólk er ekkert. Það er fólkið sem skapar auðinn og arðinn.

Haraldur Bjarnason, 24.3.2009 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband