Fólk er að átta sig

Þetta sýnir einfaldlega að þeir sem eru að kjósa Vinstri græna í dag eru ekki eins ofstækisfullir og Kolla. Fólk er búið að átta sig á að einhvern grunn þarf til að byggja upp lífið. Það er ekki nóg að tína fjallagrös, meira þarf til.
mbl.is Keik og stolt í sjötta sætinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

Ég held að fólki líði best í lífinu ef það stendur með sinni sannfæringu, og ef það er ekki sífellt að farast úr minnimáttarkennd og samviskubiti yfir að hafa átt þátt í að kalla siðferðis- og efnahagslegt hrun yfir landið sitt. Það er heldur ekki heilsusamlegt að vera með stöðugar áhyggjur og nöldrandi útí eitt yfir einhverju sem flest fólk hefur ekkert vald yfir. Það er best að leita inná við og endurvekja tengslin milli náttúrunnar og mannsins, án einhverrar sýndarmennsku, þannig koma bestu hugmyndirnar fram og þær geta alveg eins leitt til miklu meiri hagsældar og gæfu heldur en nokkurn tímann einhver örvæntingarálver og erlend fyrirtæki með verksmiðjur. Það eru endalausir möguleikar á þessu landi og fólk einsog Kolbrún Halldórs veit það. En hún er samt ábyggilega alltof geggjuð fyrir flesta íslendinga, amk þá sem eru ennþá í torfkofum á andlega sviðinu

halkatla, 8.3.2009 kl. 11:39

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Anna Karen þeir sem eru í torfkofunum í andlega sviðinu komast af í dag en ekki Kolla og þeir sem hafa hennar skoðanir.

Haraldur Bjarnason, 8.3.2009 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband