Malarvinnslan of stór biti

Slæmt er til þess að vita að Kaupfélag Héraðsbúa sé komið í þrot. Við þessu mátti þó búast eftir að Malarvinnslan fór á hausinn. Það að Kaupfélagið skyldi kaupa Malarvinnusluna undir lok framkvæmdatíma við stóriðju og virkjun á Austurlandi vakti athygli og líklega hefur þetta stóra verktakafyrirtæki verið of dýru verði keypt. Ekki er ólíklegt að einhverjir bændur geti farið illa út úr því ef KHB verður gjaldþrota. Þeir hafa haldið tryggð við það í eina öld og byggt það upp í eitt stærsta fyrirtæki sem starfað hefur á Austurlandi. Vonandi tekst mönnum að greiða eitthvað úr þessu svo fólk missi ekki vinnuna.


mbl.is Kaupfélag Héraðsbúa í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórbergur Torfason

Er ekki einhver vildarvinagreiðalykt af þeim gjörning þegar KHB keypti apparatið Halli?

Þórbergur Torfason, 7.2.2009 kl. 10:55

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Held varla Beggi.

Haraldur Bjarnason, 7.2.2009 kl. 13:03

3 Smámynd: Þórbergur Torfason

Þú þekkir andann þarna betur en ég og ég trúi þér þó reyndar mér mundi ekki bregða þó einhversstaðar hafi verið pinkill með klinki hjá kaupfélaginu til að bjarga vini.

Þórbergur Torfason, 7.2.2009 kl. 14:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband