Auðvitað

Auðvitað á að hefja hvalveiðar strax, bæði á stórhvelum og smáhvölum. Kanar eins og aðrir fara nú að átta sig hvað þarf til að halda jafnvægi í lífríki sjávar. Ef við skiljum hvalinn eftir étur hann okkur út á gaddinn. Endalaust hik í þessum málum verður bara til þess að fiskistofnum og hvalastofnum blæðir út.

Njörður KÓ 7 Hrefnuveiðar hafa gengið vel hér við land enda nóg af hrefnunni.


mbl.is Samkomulag um hvalveiðar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Sæll Halli.

Ekki má gleyma því í þessari umræðu að hvalir éta 1 - 2 milljónir tonna af loðnu árlega. Síðan erum við mennirnir að velkjast með að mæla og gefa út veiðileyfi á 150 KT eða svo. Það sér það hver heilvita maður að í þessu samhengi er sú tala algert aukaatriði. Rétt nær í að halda við fæðuframboði á milli ára hjá hvalnum.

Kominn timi til að brýna skutla og kynda katla, hefði ég haldið.

Það má ekki gleyma því heldur að náttúruverndasinnar standa einungis undir nafni heima hjá sér. Þeir vilja sjá annarstaðar hvernig lifað er á landsins gæðum.

Sindri Karl Sigurðsson, 25.1.2009 kl. 11:11

2 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Þetta þarf að ákveðast sem allra fyrst,það þarf undirbúning til að hefja hvalveiðar á stórhvölum. Við getum hraðað uppbyggingu fiskistofnana,svo um munar og ekki veitir af.

Ragnar Gunnlaugsson, 25.1.2009 kl. 11:35

3 identicon

Þessi dýr eru í útrýmingarhættu. Það er ekki rétt að drepa dýr, hvað þá dýr sem eru í útrýmingarhættu.

Matthías (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 11:48

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Matthías, hvaðan í ósköpunum hefur þú það að hvalir séu í útrýmingarhættu?  Sannleikurinn er sá að svo mikið er af hvölum að til vandræða horfir.  Ef þú ferð inn á vefinn hjá HAFRÓ, þá getur þú séð niðurstöðuna úr síðustu hvalatalningu og sem dæmi má nefna að hrefna taldist um 400.000 dýr umhverfis landið ef það telst stofn í útrýmingarhættu heiti ég Nikólína.  Halda því fram að það sé RANGT AÐ DREPA DÝR er svo fáránleg röksemdafærsla að vitibornu fólki hlýtur að blöskra.  Hvaðan í ósköpunum heldur þú að lambakjötið í kjötborðinu í Nóatúni komi, eða kjúklingarnir heldurðu að það eigi uppruna sinn í neytendapakkningunum þar?  Nei reyndu nú að fullorðnast.

Jóhann Elíasson, 25.1.2009 kl. 13:27

5 identicon

http://news.bbc.co.uk/2/shared/spl/hi/guides/456900/456973/html/default.stm

Hérna eru upplýsingar um fjölda nokkurra hvalategunda. Hrefnan er ekki í eins mikilli hættu og aðrar hvalategundir, en margar tegundir eru í útrýmingarhættu.

Ég er á móti ofbeldi. Þetta er varla meiri röksemdafærsla en svo að dráp á mönnum og dýrum stríðir gegn siðferði mínu. Hversu ómerkilegt svoleiðis siðferði kann að vera.

Matthías (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 14:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband