Þessir andsk.............

Þessir andsk...láta sér ekkert nægja.Angry
mbl.is Ísrael svarar skeytum Líbana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 8.1.2009 kl. 07:38

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Fyrirsögnin í fréttinni er misvísandi. Sama hver hefur skotið á Ísrael, eru þeir studdir af Hizballah og Íran. Líbanar koma ekkert nálægt útrýmingarvilja Íslamísta.

Eiga Ísraelsmenn að láta sér þetta nægja?

Ef einhver kemur og skýtur á hús þitt, Haraldur. Munt þú sitja aðgerðarlaus? Þú gerir það sem þú getur til að koma í veg fyrir að endurtaki sig. SÞ virðast ekki geta haft hemil á vitleysingunum í Líbanon. Þess vegna verða Ísraelsmenn að gera það sjálfir.

Eru gyðingar þeir einu í þessum heimi sem eiga að sætta sig við árásir, útrýmingar og ofsóknir?

Ef þér þykir það, ertu ekkert betri en hann Hitler.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 8.1.2009 kl. 08:53

3 Smámynd: Björgvin Gunnarsson

Vilhjálmur Örn:

Eiga Palestínumenn að sætta sig við árásir, útrýmingar og ofsóknir?

Björgvin Gunnarsson, 8.1.2009 kl. 08:57

4 Smámynd: Óskar Arnórsson

Það á að senda inn massívar flugárásir fyrir þetta í Líbanon! Ekkert annað! Sjá hvað Líbanon stjórn verður hrifið að hafa svona pakk heima hjá sér..

Þessir menn skilja enga aðra mállýsku enn blóð og dauða. Þetta eru villimenn með mestar áhyggjur um að stríðið hætti....ég trúi nú Hamas í þetta skiptið, sem er afar sjaldgæft...

Óskar Arnórsson, 8.1.2009 kl. 09:01

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Björgvin! veistu eitthvað betra ráð enn að þessir vígamenn setjist niður allir saman og hætti þessu stríði? Og byrji að ávinna sér traust og byggja upp sitt þjóðfélag?

Meðan Palestínumenn drepa einn Ísraela, má senda sprengiþotur á þetta lið...og eyða því..

Óskar Arnórsson, 8.1.2009 kl. 09:06

6 Smámynd: Sigurður Ingi Kjartansson

Ef það takmark Israel væri fyrst og fremst að koma á friði og vernda borgarana þá er þetta ekki rétta aðferðinn.

Þeir gæti t.d. verndað sína borgara með því að skjóta nyður þessar heimagerðu flaugar sem Hams er að skjóta yfir, þeir gátu á sýnum tíma varist mun öflugri, hraðskreiðari og tæknilegri flaugum (Scud) frá Írak með að eigin sögn 90% árangri með Patriot flaugunum sínum, þeir ættu að geta náð nálægt 100% árangri gegn heimagerðu flaugum Hamas (Qassam) ef þeir með því móti sýndu Hamas frámmá að ekki þýddi að skjóta yfir landamærin með þessu móti er líklegt að Hamas mundi hætta þessu á svona 2 mánuðum auk þess sem Ísrael verndaði líf borgara sinna.

"Meðan Palestínumenn drepa einn Ísraela, má senda sprengiþotur á þetta lið...og eyða því"

á sama hátt má segja

"Meðan Ísrael menn drepa einn Palestínumann, má senda rakettur á þetta lið...og eyða því"

Ég er reyndar persónulega á móti báðum þessum fullirðingum.

Sigurður Ingi Kjartansson, 8.1.2009 kl. 09:22

7 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ekki ég Sigurður! Ég stend með Ísrael og ekki villimönnum..við getum verið sammála um að vera ekki sammála í því efni.

Það þarf að komast á friður þarna og hættaa þessum rakkettu árásum..

Óskar Arnórsson, 8.1.2009 kl. 09:32

8 identicon

Vilhjálmur: mikill er vanmáttur þinn. Þú vílar ekki fyrir þér að verja hverja gjörð þeirra, sama hvers eðlis. Myndirðu kippa þér upp við að IDF myrti þína eigin fjölskyldu? Sjálfan þig? Er eitthvað sem þeir gætu gert rangt í þínum augum? Þú sérð myndir af hundrað sundursprengdum palestínskum börnum, og þín fyrsta hugsun er að Hamas hafi drepið eitt ísraelskt barn í fyrra eða árið þar áður þ.a. ekki geti þetta skipt miklu og ekki hafi verið við öðru að búast. Hvað kom fyrir þig þannig að þú getir ekki séð hina raunverulegu þjáningu?

 Þú kallar þig "post-doc Kaupmannahafnar" og segist hafa doktorsgráðu. Nú veit ég ekki hvaðan þú fékkst þína gráðu, hvort það var frá Kellogs eða annarstaðar frá, en það hryggir mig að þú virðist ekki bera meiri virðingu fyrir hinni vísindalegu aðferð, eins og er augljóst við lestur pósta þinna og raunveruleika mats þíns sem þar skín í gegn. Hvaða vísindamaður gæti vegið og metið þjáningar mannfólks með þvílkri einn-á-móti-hundrað vikt?

Þú hikar ekki við að líkja mönnum við Hitler, og er þar eingöngu vanmáttarkennd þín þar á bak við. Þú ert ekki fær um að kljást við menn á forsendum málefna og sérð þér ekki annað fært en að grípa til persónulegra árása, og mátt þú hafa skömm fyrir.

 Þú skalt ekki halda að ég hampi barnsmorðingjum þeim er hafa leynst meðal raða Palestínumanna, ég fordæmi þá til jafns við barnsmorðingja Ísraelsmanna. 

Kristján Guðmundsson (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 09:33

9 Smámynd: Sigurður Ingi Kjartansson

Eitt getum við verið sammála um vona ég Óskar, við skulum vera sammála um að standa með saklausum borgurum, konum og börnum (já og líka karlmönnum ef því er að skipta).

Sigurður Ingi Kjartansson, 8.1.2009 kl. 10:52

10 Smámynd: Óskar Arnórsson

Já, ég er sammála því 100% Sigurður. Þetta er karlaríki og og þessi Arabaríki verða að standa saman og taka í taumanna og hætta þessu stríði.

Það vinnur engin í stríðum, hvaða stríðum sem er, nema vopnasalarnir sem verða bara ríkari..

Óskar Arnórsson, 8.1.2009 kl. 11:56

11 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Vilhjálmur ef skotið væri á hús mitt myndir ég ekki skjóta á móti. Það er alveg ljóst. Ég er ekki í sama ofebldisliðinu og þú og Ísralelarnir.

Haraldur Bjarnason, 8.1.2009 kl. 12:13

12 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Ömurlegt mál í alla staði. Minnir á leikfangabyssu slag í gamla daga. Ef þú reynir að drepa mig, drep ég þig ! Þessu verður að linna.

Hulda Margrét Traustadóttir, 8.1.2009 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband