Genin eru þarna

Þarf einhvern að undra? Framsóknargenin eru þarna. Annars er ég sammála Guðmundi. Samfylkingin hefur ekki staðið undir væntingum,. Hins vegar hefur hún verið að taka við klúðri Framsóknar síðustu árin þannig að þess vegna ætti Guðmundur ekki að þurfa að yfirgefa hana. Framsókn ætlar greinilega að koma með nýjan flokk, nýtt fólk í kosningar og þá má Samfylkingin vara sig ef allt það lið sem nú er búið að klúðra tækifærunum ætlar að sitja áfram.
mbl.is Guðmundur í Framsóknarflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:

Ég held nú að pólitík sé ekki í genunum. Frekar hallast ég að því að Guðmundi ofbjóði bara dugleysi sinna manna í ríkisstjórn og telji að í Framsóknarflokknum sé svigrúm til uppbyggingar og pláss fyrir menn með hans skoðanir. Og nú má Samfylgingin vara sig. Framsóknarflokkurinn er að verða jafnaðarmannaflokkur í líkingu við Alþýðuflokkinn en Samfylkingin farin að líkjast sérhagsmunagæsluflokknum sem situr í stjórn með henni.

, 6.1.2009 kl. 10:09

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Dagný. Nákvæmlega það sem ég segi í þesari færslu, þrátt fyrir genin.

Haraldur Bjarnason, 6.1.2009 kl. 10:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband