Gott skref, en hvað segir samstarfsflokkurinn?

Það er svo sem gott að Ingibjörg Sólrún tekur af skarið og fordæmir þessi níðingsverk Ísraelsmanna. Það getur hins vegar orðið þrautinni þyngra fyrir hana að sannfæra ráðherra hins stjórnarflokksins um þetta ef marka má orð Þorgerðar Katrínar í hádegisfréttum útvarps. Það er líka umhugsunarvert fyrir hana og fleiri sem börðust fyrir inngöngu í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að þar beittu Bandaríkjamenn neitunarvaldi gegn tillögu um fordæmingu þessara aðgerða. Enda eru það Bandaríkjamenn sem kosta allan stríðsrekstur Ísraelsmanna.
mbl.is Fordæmir innrás á Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Samstarfsflokkurinn beygir sig í svaðið, felur sig og gefst upp að lokum. Það gerir fólk oftast þegar hryðjuverkamenn eru á brölti í nágrenninu.

Lítil kona Imba, að þurfa að nota deilu í Miðausturlöndum og Hamas til að styrkja stöðu sína í íslensku skrípó-pólitíkinni.

Börn sem deyja í stríði, í þessu tilfelli vegna þess að Hamas notar þau í fremstu víglínu, syrgjum við öll. En Imbu er alveg sama um börnin. Gaza-stríð Hamas hentaði henni eins og svalandi drykkur í eyðimörk íslensku kreppunnar.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.1.2009 kl. 15:09

2 Smámynd: Baldur Hermannsson

Hvað er svo gott við skref sem hefur nákvæmlega enga þýðingu? Aflóga kemmikelling uppi á blanka Íslandi þenur kjaftinn .... og hvað svo? Hún hunsaði Hamas þegar hún fór til Palestínu. Það var skítugt. Sama hvað hver segir þá er Hamas fulltrúar fólksins og menn eiga að tala við þá.

Baldur Hermannsson, 4.1.2009 kl. 15:29

3 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

 d_bloggi_myrtar_af_hamas_221848

Saklaust fólk hefur látið lífið í tilgangslausum árásum Hamas gegnum árin.  HVENÆR KOM FORDÆMING Á ÞEIM ÁRÁSUM FRÁ ÍSLANDI ????????  Hvar var hún IMBA?

Hver fordæmdi á Íslandi, þegar Hamas myrti unga móður og fjórar dætur hennar árið 2004 (sjá mynd)? ENGINN.  Þær voru skotnar í tætlur af frelsishetjum Hamas. ERUÐ ÞIÐ BÚIN AÐ GLEYMA?

Íslenskir fjölmiðlar notuðu tvær línur á þær. Sumir minntust ekki á þær.  TVÆR LÍNUR, skítseyðin ykkar.

Margir Íslendingar hafa einhliða skoðun á máli sem þeir vita ekkert um. Hatrið stjórnar ykkur. Þið eygið reglulega bágt í kreppunni.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.1.2009 kl. 15:41

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Villi fer mikinn í áróðri sínum fyrir morðingjana

Óskar Þorkelsson, 4.1.2009 kl. 15:42

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þorgerður Katrín gerði illilega á sig núna.

Hólmdís Hjartardóttir, 4.1.2009 kl. 15:56

6 Smámynd: Baldur Hermannsson

Ég veit ekkert um þennan Vilhjálm Örn, mér sýnist hann reyndar ansi hlutdrægur í allri umfjöllun þegar rætt er um Ísrael og Hamas - en þetta þarna er bara alveg hárrétt hjá honum, því miður. Þessar hræsnisfullu kommakellingar steinhalda kjafti þegar arabaskríllinn murkar lífið úr blásaklausum júðum, þá er sko ekki verið að efna til mótmælafunda. Purkunarlaust ofbeldi Hamas-liða kallar á andsvar og það sér það hver heilvita maður.

Baldur Hermannsson, 4.1.2009 kl. 16:14

7 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Þessi fjölskylda sem villi öfgamaður og zíonisti sýnir mynd af hér er ein af mörgum.. málið er að myndir af dauðum palestínskum stórfjölskyldum ná ekki til okkar..  1 israeli.. 400 palestínumenn.. hlutfallið er sirka svona..

Óskar Þorkelsson, 4.1.2009 kl. 16:37

8 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Ekki það að ég ætli mér að verja utanríkisráðherra, en það má benda bæði Villa og Baldri á að Ingibjörg birtist í sjóvarpsfréttum um árið, þegar hún ætlaði að bjarga málum í Mið-austurlöndum, þá á israelsku heimili  sem hafði orðið fyrir eldflaug Hamas og sýndi bæði hluttekningu og fordæmdi.

það sem er merkilegt við þessa yfirlýsingu, eins og Hólmdís kemur inná, er að það er komið vor í loft með kosningavindum.

Magnús Sigurðsson, 4.1.2009 kl. 17:17

9 Smámynd: Baldur Hermannsson

Þakka þér fyrir ábendinguna, Magnús, en það er alls ekki svo að ég sé á bandi júða í þessu stríði. Ég vil bara fá frið í þennan heimshluta. En mér gramdist verulega að Imba skyldi ekki einu sinni ræða við Hamas-liða þegar hún var að flækjast þarna, það er nú lágmark að tala við fólk.

Baldur Hermannsson, 4.1.2009 kl. 17:22

10 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Það er auðvitað mikil munur á herstyrk Hamas og Ísraelsmanna með Bandaríkjamenn sem bkahjarl. Auk þess er Gaza hernumið svæði og því ber Ísraelsmönnum skylda til að vernda fólk þar en ekki murka úr því lífið. Ísraelsmenn komast upp með, í skjóli Bandaríkjamanna, að brjóta alþjóðlega sáttmála. Skiptir þá engu hver hefur gert einhverjum einhverntímann. Ekki er ólíklegt að hlutfallið sem Óskar nefnir sé nærri lagi. Ég hef nú ekki getað séð á aðgerðum Ingibjargar Sólrúnar að undanförnu að hún sé einhver kommakerling. Langt í frá.

Haraldur Bjarnason, 4.1.2009 kl. 17:25

11 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Ég er sammála þér Baldur Ingibjörg hefi verið meiri manneskja ef hún hefði rætt við Hamas um árið.  Það vill stundum gleymast að Hamas unnu sigur í lýðræðislegum kosningum í Palestínu þó svo sá sigur hafi verið hafður af þeim á ólýðræislegan hátt. 

Ísrael telur sig hafa afsal frá drottni fyrir öllu því landi sem Palestínumenn ráða.  Það hafa þeir talið í mörg þúsund ár og trúa að þeir megi útríma þeim þjóðum sem fyrr eru, Halli.

Magnús Sigurðsson, 4.1.2009 kl. 20:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband