Verðfelldur þjófnaður

Minn lífeyrissjóður ætlar að lækka dráttarvexti hjá vinnuveitendum niður í 10% í 18% verðbólgu. Nú veltir maður fyrir sér hvort þeir sem eru með lán hjá sjóðnum njóti sömu kjara? Hvaða rétt hefur sjóðurinn, frá okkur sem eigum hann, til að gera þetta? Vinnuveitendur eru líka búnir að draga þetta af sínum starfsmönnum og það að skila því ekki til lífeyrissjóðsins er því hreinn þjófnaður, sem þarna er verið að verðfella. Skildi stjórnarseta vinnuveitenda í lífeyrissjóðum launafólks eitthvað hafa með þetta að gera? 
mbl.is Stapi lækkar tímabundið dráttarvexti af iðgjaldskröfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:

Ja það skyldi þó ekki vera?

, 20.12.2008 kl. 09:39

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Halli enn og aftur það þarf að stefna stjórnendum lífeyrissjóðanna, okkur er gert með lögum að láta 12% tekna okkar til þeirra. 

Núna er Pétur Blöndal með hugmyndir um þriggja ára skyldusparnað á launafólk svo að hægt verði að endurfjármagna bankakerfið. 

Það hefur engum dottið í hug að fækka ríkisbönkunum til að draga úr kostnaði skattgreiðenda.  Þetta fólk sem stjórar er ga, ga, og pikkfast í úreltum gildum.

Magnús Sigurðsson, 20.12.2008 kl. 11:02

3 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Fækka þingmönnum um helming, hvað höfum við að gera við yfir 60 manns á þingi? 90 % óvirkir hvort eð er. Engan forseta, nýta rándýra útanríkisþjónustuna. Lestu bloggið hennar Jakobínu Ólafs, hún er að segja frá því að Vigdís Finnboga fái enn greitt úr ríkissjóði fyrir utan eftirlaunin.

Rut Sumarliðadóttir, 20.12.2008 kl. 11:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband