Einfalt

Einfalt. Þessi ríkisstjórn hefur ekkert að gera á fund. Til hvers? Hún gerir ekkert í samþykktum sínum nema að leggja auknar álögur á almenning og þá aðalega þá sem minnst mega sín. Ekkert gert við útrásarliðið eða hátekjuaðalinn. Allir aðrir eiga að borga þeirra sukk. Mér finnst það gott hjá þessu fólki að loka aðgangi ríkisstjórnarinnar að Ráðherrabústaðnum en eflaus fer stjórnin eitthvert annað að funda.
mbl.is Viðbúnaður vegna mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Hallsson

Þau gætu fundað um að segja af sér... en það er sennilega of mikil bjartsýni. Best að rétta þeim skóna:)

Hlynur Hallsson, 16.12.2008 kl. 09:50

2 Smámynd: Gagnrýnirinn

Það sem böggar mann mest er ástæðan fyrir þessum álögum. Við erum í raun að þrífa skítinn upp eftir jón ásgeir og hannes smára.

 Við þurfum að refsa þessum mönnum og ef að dómsvaldið gerir það ekki sem er líklegt þar sem jón ásgeir hefur þetta lið í vasanum, þá á almennignur að það með róttækum aðgerðum.

Gagnrýnirinn, 16.12.2008 kl. 09:51

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Eru ekki allir í kuldaskóm núna Hlynur?

Haraldur Bjarnason, 16.12.2008 kl. 10:07

4 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Væru ekki smekkleg mótmæli að senda ríkisstjórninni gamla skó?

Give them the boots?

Jón Halldór Guðmundsson, 16.12.2008 kl. 11:05

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Góð hugmynd senda þeim gamla skó

Hólmdís Hjartardóttir, 16.12.2008 kl. 11:14

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Íranski blaðamaðurinn henti skó í Bush og það er víst ein mesta niðurlæging sem til er þar í landi. Ætli að það sé ekki betra að hafa fætur í skónum hér og sparka rækilega í rassg...... á þessu liði.

Haraldur Bjarnason, 16.12.2008 kl. 13:56

7 identicon

Ég styð af hjarta þá aðgerð að senda skó. Hvernig væri t.d. að safna saman gömlum skóm og fylla tröppurnar upp að Ráðherrabústaðnum fyrir næsta þriðjudag?

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 13:57

8 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Þetta var jú í Írak en ekki Íran, sorrý.....

Haraldur Bjarnason, 16.12.2008 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband