Allar aðgerðir miða að verðbólgu

Nú þurfa allir að kaupa íslenskt. Það hafa verið skilaboð ríkisstjórnarinnar til þjóðarinnar. Hvort sem það er bjór, kex eða skipasmíðar. Íslenskt á það að vera en allar aðgerðir ríkistjórnarinnar núna miða að allt öðru. Um leið og álögur á íslenska framleiðslu hækka stuðlar það að aukinni verðbólgu. Vísiltalan fer upp, lánskjaravísitalan hækkar og um leið verðbólgan. Íslensk heimili blæða, hvort sem þau kaupa þessa þjónustu eða ekki. - Allar aðgerðir ríkistjórnarinnar miða að verðbólgu.
mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Runólfur Jónatan Hauksson

Eins og ég segi Halli minn,,,,,,,, Nú er tími til komin að flýja land og leyfa þessum fíflum að leika sér. Maður er alveg búin að fá nóg af þessu batterríi hér.

Kveðja norður fyrir jökla.

Runólfur Jónatan Hauksson, 11.12.2008 kl. 21:56

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Fæ ég pláss hjá þér ef við förum með einhvern dall suður á bóginn?

Haraldur Bjarnason, 11.12.2008 kl. 22:00

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Förum bara

Hólmdís Hjartardóttir, 11.12.2008 kl. 22:17

4 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ég kem með.

Víðir Benediktsson, 11.12.2008 kl. 22:26

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það er til einfalt ráð við þessu.  Það er að hækka launin, afnema verðtrygginguna og auka sólskinið.  Væri ekki frekar að stofna flokk með þessi stefnumál hann myndi örugglega vinna næstu kosningar og þá væri nú fínt að vera í þeirri aðstöðu að geta hækkað sín laun mest.

Magnús Sigurðsson, 11.12.2008 kl. 22:51

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Víðir. Liggur ekki gamli Kaldbakur hér við bryggju óbættur hjá garði. Gvendur vinalausi gæti eflaust treyst ykkur Runna til að stýra honum á einhver mið Við Maggi og Hólmdís gætum svo verið á dekkinu og eflaust einhverjir fleiri tilbúnir.

Haraldur Bjarnason, 11.12.2008 kl. 23:16

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Víðir sagðist ætla að fljúga.

Hólmdís Hjartardóttir, 11.12.2008 kl. 23:41

8 Smámynd: Víðir Benediktsson

Reyndar er það Harbakur sem liggur við bryggjuna. Frétti að einhverjir Rússar ásamt Magnúsi gleymda Þorsteinssyni hafi keyt hann. Við gætum boðist til að færa þeim hann og svo bara með Aeroplot til Klakksvíkur. Ég kannast við mig um borð í Harðbak.

Víðir Benediktsson, 11.12.2008 kl. 23:45

9 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Það skiptir engu hvor bakurinn er. Þið Runni farið létt með akoma okkur á einhver almennileg mið

Haraldur Bjarnason, 11.12.2008 kl. 23:48

10 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Takið endilega frá pláss fyrir mig og látið mig vita ef af ferðinni verður

Rakel Sigurgeirsdóttir, 12.12.2008 kl. 07:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband