Loksins! Halli á 150 milljarða

Halli ríkissjóðs mun aukast mikið á næsta ári og verða yfir 150 milljarðar króna samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Eru ekki smá beygingavillur í þessu? Átti ekki að standa: "Halli á ríkissjóð sem mun aukast mikið á næsta ári og verða yfir 150 milljarðar." Ég vissi alltaf að einhvern tímann yrði ég ríkur. - Kveðja og þakkir, Halli
mbl.is Hallinn yfir 150 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þinn tími er kominn Halli minn.  Þú gleymir ekki vinum þínum

Hólmdís Hjartardóttir, 10.12.2008 kl. 20:11

2 Smámynd: Víðir Benediktsson

Tekur því varla að nefna svona smáaura. JÁJ skuldar 1000.000.000.000 isk.

Víðir Benediktsson, 10.12.2008 kl. 20:19

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Já, dýr yrði Halli allur

Sigrún Jónsdóttir, 10.12.2008 kl. 21:04

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það er sárara en tárum taki Halli minn, að tjá þér að þú ert að miskilja fréttina.  Þegar þetta er betur skoðað er þarna átt við tölu sem deilist á alla Íslendinga, þetta verða því ekki nema ca. 500.000 sem þú færð í þinn hlut.

Magnús Sigurðsson, 10.12.2008 kl. 21:15

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Maggi vertu ekki að rugla þetta með einhverri stærðfræði

Haraldur Bjarnason, 10.12.2008 kl. 21:18

6 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Ef þessi 500.000 kynni vera mínus tala þá er spurning hvort þú gætir skuldajafnað þessu með Gift inneigninni þinni.  Þú hlýtur að hafa verið hjá Samvinnutryggingum GT.

Magnús Sigurðsson, 10.12.2008 kl. 21:22

7 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ert þú Halli Ríkissjóðs?

Víðir Benediktsson, 10.12.2008 kl. 21:22

8 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Nei Víðir þú veist hvað þeir eru vitlausir í íslenskri málfræði á mbl.is. Þarna átti að standa: Halli á ríkissjóð.

Haraldur Bjarnason, 10.12.2008 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband