Hvað er að gerast?

Hvað er Þorgerður Katrín búin að gera núna? - Á RÚV að fara út af auglýsingamarkaði? - Verða svæðisstöðvar lagðar niður? - Þetta tvennt kæmi mér ekki á óvart. - Hvort tveggja er landsbyggðinni í óhag og hagnast markaðshyggjunni á landráðaskaganum.
mbl.is Boðað til starfsmannafundar hjá RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

hvað sem er að gerast þarna þá fnnst mér að ríkið eigi að halda fólki í vinnu. Það er gífurlegt atvinnuleysi framundan....meira en nokkurn órar fyrir

Hólmdís Hjartardóttir, 28.11.2008 kl. 11:17

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

hvernig er með opinbera starfsmenn - til að lágmarka uppsagnir má lækka laun á þá eins og í einkafyrirtækjum ?

Jón Snæbjörnsson, 28.11.2008 kl. 11:32

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Það má hvergi lækka laun samkvæmt kjarasamningum Jón. Hvorki hjá ríki né einkafyrirtækjum. Hins vegar má lækka firborgarnir. Til dæmis skil ég ekki hvers vegna Páll Magnússon er með um 1.800 þúsund á meðan fréttamenn hafa um 400 þúsund.

Haraldur Bjarnason, 28.11.2008 kl. 11:37

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Yfirborganir átti það að vera.

Haraldur Bjarnason, 28.11.2008 kl. 11:38

5 Smámynd: Depill

Haraldur, rétt og rangt, þekki ekki alveg með opinbera starfsmenn. En það sem hefur verið að gera í einkareknum fyrirtækjum Jón er basicly að það er verið að reka fólkið og ráða það aftur á 10% lægri launum.

Flest allir sem taka á sig 10% launalækkun hafa val um að hætta í vinnunni ( eins og t.d. var gert hjá 365, það var basicly 10% launalækkun eða þú hættir og færð 100% laun út uppsagnarfrestinn ).

Depill, 28.11.2008 kl. 11:40

6 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það kæmi mér ekki á óvart að tilkynnt verði að laun Páls Magnússonar verði lækkuð um 200.000 á mán.. RUV verði tekið að hluta út af auglýsingamarkaði.  Uppsagnir verði hjá 20-30 starfsmönnum án þess að það verði útfært frekar að sinni. 

Magnús Sigurðsson, 28.11.2008 kl. 11:43

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Depill. Lögum samkvæmt má ekki lækka laun umfram kjarasamninga en víða hefur fólk verið á launum umfram kjarasamninga og þau má lækka.

Haraldur Bjarnason, 28.11.2008 kl. 11:47

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Hann ætlar að boða niðurskurð á eigin launum og skila jeppanum

Sigrún Jónsdóttir, 28.11.2008 kl. 11:55

9 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Sammála ykkur Sigurbjörg og Sigrún. Enginn venulegur starfsmaður hefur svona aukasporslur.

Haraldur Bjarnason, 28.11.2008 kl. 11:58

10 Smámynd: Sigurður Hrellir

Tæknimenn hjá RÚV eru flestir með rúmlega 200 þús. í grunnlaun á mánuði eftir því sem ég best veit. Launum hefur markvisst verið haldið niðri svo að starfsmenn taki alla þá yfirvinnu sem býðst - hvenær sem er. Ég geri ekki ráð fyrir því að Páll ætli að spara með því að lækka launin sín eða þeirra útvöldu sem eru með upp undir 1 milljón á mánuði.

Sigurður Hrellir, 28.11.2008 kl. 12:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband