Þeir gátu það sem Davíð gat ekki

Afkomendur togarajaxlanna frá Grimsby og Hull gátu það sem Davíð og félagar gátu ekki. Þeir gátu fengið það í gegn að hægt er að koma greiðslum til íslenskra útgerða frá Bretlandi. Bresku bankarnir höfðu meiri trú á þeim en Davíð og félögum í Seðlabankanum. Hins vegar hefði ég ekki grátið það þótt Bretarnir hefðu orðið fisklausir. Við getum eflaust selt allan okkar fisk annað. 
mbl.is Bretar óttuðust skort á fiski og frönskum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar B.

Svona rétt smá punktur úr neðra til þín Halli! Ég veit ekki til þess að þetta sé enn komið í lag ef eitthvað er farið að berast af greiðslum þá er það amk. mjög lítið af því sem útistandandi er og tregða í kerfinu er ansi mikil.   

Bkv., Ómar B.

Ómar B., 28.10.2008 kl. 15:03

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ekki ýsuna Haraldur. Bretland-Skotland er nánast eini markaðurinn fyrir það kvikindi, svo það er ekki gott að setja sig út þar.

En menn þurfa nú ekki að vera göldróttir til að geta eitthvað sem DO getur ekki, það er nú orðið nokkuð lóst held ég.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 28.10.2008 kl. 15:03

3 Smámynd: haraldurhar

   Þó þú hefðir ekki grátið að við hefðum ekki getað þjónað fiskmörkuðunnum í Hull og Grimsby, þá er það ætið dauðans alvara að vernda markað fyrir ísl.fisk, og ekki síst í ljósi þess að þessum mörkuðum hefur verið þjónað með fiski frá 'Islandsmiðum yfir 100 ár.  Nægar eru nú hörmungar okkar og ekki er á bætandi að missa þann markað fyrir fisk er hefur gefið okkur gott verð fyrir okkar fisk.

   Það eru viðsjálegir tímar og verð á hrávörum hefur lækkað yfir helming á sl. mánuðum., og ekki ´má teljast ósennilegt að við munum verða fyrir verulegu verðfalli og sölutregðu á fiskafurðum okkar á komandi vikum. 

haraldurhar, 28.10.2008 kl. 15:08

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Nei Ómar. Eflaust eru einhverjir hnökrar á þessu og mikið sem var orðið útistandandi en þetta sýnir þó hve lítið mark er tekið á íslenska Seðlabankanum í dag hjá öðrum þjóðum. Satt segirðu Hafsteinn. Það éta engir ýsuna að neinu marki nema Íslendingar og Bretar. Seinni málsgreinin þín er augljós.

Haraldur Bjarnason, 28.10.2008 kl. 15:09

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það er alveg rétt Ómar, tregða er mjög mikil, sérstaklega frá Bretlandi.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 28.10.2008 kl. 15:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband