Ál niður - Fiskur upp

Á sama tíma og álið fer niður er fiskurinn á uppleið. Aldrei að setja öll eggin í sömu körfuna.
mbl.is Fylgjast náið með niðursveiflu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Kannski lækkandi álverð forði okkur frá fleiri álverum!!!

Hólmdís Hjartardóttir, 18.10.2008 kl. 20:50

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Vonandi

Haraldur Bjarnason, 18.10.2008 kl. 20:56

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Hagfræðingarnir Þorsteinn Siglaugsson og dr. Sigurður Jóhannesson Zoëga, hjá Hagfræðistofnun HÍ sá síðarnefndi, hafa báðir komist að þeirri niðurstöðu út frá forsendum og framlögðum gögnum Landsvirkjunar að þegar orkusamningar voru gerðir vegna Kárahnjúkavirkjunar þá var fyrirséð, þrátt fyrir hátt álverð á heimsmarkaði þá, að virkjunin myndi ekki standa undir sér. Ljóst var að almenningur yrði að borga brúsann vegna atvinnusköpunargæluverkefna framsóknarmanna í bland við þingmenn austurlands.

Nú þegar álverð hrapar þá er ljóst að við munum borga enn meir en áður með raforkunni til álveranna - gleðilegar fréttir fyrir heimilisbókhald íslendinga ekki satt ? Sendum Halldóri Ásgrímssyni þakkarbréf.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 18.10.2008 kl. 23:45

4 identicon

Þið virkjunaranstæðingar skammist ykkar. Ég er starfsmaður hjá Alcoa,fjarðaráli og ég mun alltrei kjósa vinnstri græna Það er um að gera að virkja og framleiða ál og efla gott fjármálakerfi í landinu. Ísland væri gjaldþrota ef vinnstri grænir væru við völd þess vegna kýs ég ekki vinnstri græna sém að eru á móti öllu og vilja ekki framleiða neitt.

Umm (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 00:11

5 identicon

Sammála..alls ekki setja fleiri egg í álkörfuna!

Umm: ekki hafa Vinstri grænir verið við völd síðan ég byrjaði að fylgjast með pólitík. Mér sýnist þetta blessaða land okkar samt vera á góðri leið með að verða gjaldþrota, þrátt fyrir virkjanir og álframleiðslu.

arna (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 01:13

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Umm ég er ekki vinstri græn en mér sýnist að þrátt fyrir fjarveru þeirra frá stjórn landsins séum við gjaldþrota.  Og þrátt fyrir Kárahnjúka og öll álverin.

Hólmdís Hjartardóttir, 19.10.2008 kl. 01:25

7 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Eigi skyldi verpa öllum sínum áleggjum á sömu pizzuna.  Eineltingaleikurinn verður óleikur þegar klukk er þýtt sem þú ert´ann!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 19.10.2008 kl. 03:00

8 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Álver eru svo sem ágæt en það er komið nóg af þeimog tími til kominn að huga að öðru

Haraldur Bjarnason, 19.10.2008 kl. 07:19

9 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég er voða hræddur um að við séum að sjá framan í verðlækkanir á lúxusvörum eins og fiski, því miður, en það er bara eðlilegt í kreppu, er það ekki?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 19.10.2008 kl. 10:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband