Samgöngubætur fylgdu ekki álveri

Þau gerast nú tíðari umferðaróhöppin á Hólmahálsi enda vegurinn þar ekki til að taka á móti þeirri auknu umferð sem orðið hefur með tilkomu álvers við Reyðarfjörð. Eflaust eigum við eftir að fá fréttir af fleiri óhöppum þarna og víðar á Austfjörðum þegar vetur gengur almennilega í garð. Það gleymdist nefnilega að hafa samgöngubætur með í dæminu þegar ákveðið var að setja álverið niður við Reyðarfjörð. Fáskrúðsfjarðargöngin eru einu framfarirnar sem orðið hafa í vegagerð á þessu svæði í áratug eða meira.
mbl.is Olíubíll valt á Hólmahálsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjalti Garðarsson

Það er verið að vinna í Hólmahálsinum.  Þar er stórfyrirtækið Suðurverk á ferð.

Hjalti Garðarsson, 13.10.2008 kl. 13:47

2 identicon

Það er verið að búa til nýan veg hann er í framkvæmd þannig að það er ekki búið að opna hann þannig að umferð verður að fara um gamla veginn á meðan

Oddný (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 13:49

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Liggur sá vegur ekki talsvert neðar?

Haraldur Bjarnason, 13.10.2008 kl. 14:09

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hallinn upp Hólmahálsinn á nýja veginum verður um 7% í stað 12% og hann liggur í um 100m hæð í stað 150m. Þessi vegur var á áætlun 2004-5 en var frestað þegar ákveðið var að fara í niðurskurð á framkvæmdum vegna þenslunnar.

En það er ekki rétt hjá þér að engar samgöngubætur hafi átt sér stað með tilkomu álversins. Vegurinn um Fagradal var breikkaður og lagfærður til muna árið 2004.

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.10.2008 kl. 17:13

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Gunnar ég tel nú ekki einhverjar smá slitlagslagnir á vegaxlir efst á Fagradal til framkvæmda í vegagerð. Hins vegar átti að ljúka þessum framkvæmdum á Hólmahálsi og Fagradal áður en framkvæmdir hófust við álver. Sömuleiðis jarðgangagerð frá Seyðisfirði um Mjóafjörð, til Norðfjarðar alla leið á Eskifjörð og jafnvel til Reyðarfjarðar, þá hefði verið hægt að sleppa því sem verið er að gera um Hólmaháls í dag og hlífa þannig þeirr frábæru náttúr sem þar er. Síðan hefði mátt huga að tengingu frá Héraði um Slenjudal í Mjóafjörð. Þannig var hægt að tengja allt þetta svæði í eitt atvinnusvæði með aðgangi að höfnum og besta flugvelli landsins. Þetta á að vera samhangandi við álver og virkjun.

Haraldur Bjarnason, 13.10.2008 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband