Guðni jafn lausmáll og Davíð

Er þetta tímabært Guðni? Við vitum að Bretar hafa í þremur landhelgisdeilum verið með hroka og ofbeldi gagnvart Íslendingum. Er ekki rétt að bíða með öll stóryrði núna og athuga hvort ekki verður hægt að leysa málin með vitrænum hætti? Ef það gengur ekki þá má athuga það sem Guðni segir. Öll svona ummæli núna eru varasöm, lærum af lausmælgi Davíðs.
mbl.is Guðni Ágústsson: Kærum Bretana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Tek undir með þér þarna

Einar Örn Einarsson, 10.10.2008 kl. 18:47

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Jú ég held menn skyldu vara sig á gífuryrðum.

Hólmdís Hjartardóttir, 10.10.2008 kl. 18:57

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Nei, nei, frekar setja síðasta dízeldropann á varðskipin, manna síðasta langskipið & fara í gamla útrázarvíkinginn á þessa tjalla.  Ízlandi allt !

Steingrímur Helgason, 10.10.2008 kl. 19:45

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Zteingrímur. Það er nýbúið að sjósetja langzkip í Stykkishólmi, sem ætlað var útlendum auðmönnum. En Sigurjón hjá Skipavík ætlar eflaust að sigla þessu langskipi fyrst um sinn. Það kann hann, áður en hann getur selt það. Hér er slóðin:  http://www.skessuhorn.is/default.asp?Sid_Id=24845&tid=99&fre_Id=77632&meira=1&Tre_Rod=001|002|

Haraldur Bjarnason, 10.10.2008 kl. 20:35

5 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Íslenskir forystumenn verða að gæta orða sinna þessa dagana og það þjónar engum tilgangi að tala gáleysislega núna.  Ég held reyndar að forystumenn þjóðarinnar, þ.m.t. DO og GÁ  skilji ekki hvað ástandið er alvarlegt, enda bera þeir mikla ábyrgð hafandi verið í ríkisstjórnum sem horfðu á undirbúninginn að hruninu og gerðu ekkert nema hampa þeim sem keyrðu útrásina og skuldsetninguna áfram.  Tími þeirra sem brugðust er liðinn og þeir fara vonandi að skynja það sjálfir.  Ég  vona bara að þjóðin taki völdin þegar óveðrið er yfirstaðið.

Magnús Guðjónsson, 10.10.2008 kl. 23:04

6 Smámynd: Víðir Benediktsson

Það á að zlíta ztjórmálazambandi við þezza andzkota, Zvona kemur maður ekki fram við vini zína og allra zízt þegar þeir liggja í valnum og geta enga björg zér veitt. Brown hefur zínt og zannað að hann er vezalingur.

Víðir Benediktsson, 10.10.2008 kl. 23:19

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ég skil viðbrögð Brúns vel...........ég hlustaði á DO

Hólmdís Hjartardóttir, 11.10.2008 kl. 00:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband