Guðni, peningar hafa áður komið frá Rússlandi

Þessi frétt er athyglisverð. Guðni, Framsóknarmaður, talar enn um kommúista, Það er löngu búið að einkaveiða Sovétið og Rússland nútímans er allt annað. Hann tlar um Noðurlöndin en hvað hefur komið út úr þvi? - Hvaðan komu peningarnir til að kaupa Landsbankann? Komu þeir ekki frá Rússlandi, Guðni?
mbl.is Guðni og Pútín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

jú jú þjórféð frá Rússíá

Hólmdís Hjartardóttir, 7.10.2008 kl. 16:25

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Já, meira að segja bjórþjórfé ekki af þjóðardrykknum Vodka

Sigrún Jónsdóttir, 7.10.2008 kl. 17:20

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Sigrún þeir Maggi í Kaupfélaginu og Björgólfarnir græddu mest á að selja draslið til Heineken

Haraldur Bjarnason, 7.10.2008 kl. 17:31

4 Smámynd: Runólfur Jónatan Hauksson

Halli......

Var ekki stolið gamalli gosverksmiðju norðan frá Akureyri og hún flutt til Rússlands eða unhvert þangað. Starfrækt í einhver ár meðan safnað var fyrir svona einum Landsbanka eða svo?

Runólfur Jónatan Hauksson, 7.10.2008 kl. 17:52

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Jú þannig var það Runi

Haraldur Bjarnason, 7.10.2008 kl. 17:59

6 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Kvöldfréttir BBC í kvöld: Fyrst les þulurinn um gjaldþrot bankanna og hrunið í Skotlandi, segir svo frá Ískrísunni og alkulinu í fjármálaheiminum hér.. þá kemur Geir Haarde og segir að hann haldi að Íslendingarnir geti staðið undir því að endurgreiða þeim 150.000 Bretum sem trúðu Icesave fyrir sparifénu sínu.. þá kom þulurinn aftur og sagði það tóma þvælu og lygi í Geir, þeir væru á hvínandi hausnum.. þá kemur mynd af grátandi einstæðri móður sem kom að lokuðum dyrum og sagðist hafa treyst þessum íslenska banka fyrir aleigu sinni...

Já, það er ógaman að vera Íslendingur í Englandi í dag.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 7.10.2008 kl. 20:48

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Úff Helga Guðrúnn

Hólmdís Hjartardóttir, 7.10.2008 kl. 20:50

8 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Var að horfa á fréttir kl 10 sem snérust að stórum hluta um Ísland og svikin við breska sparifjáreigendur. En tvennt vakti sérstaka athygli mína og áður en ég fer að skrifa eitthvað sem ekki er rétt með farið.. -hvað sagði Geir að rússar ætluðu að lána Íslandi mikið..?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 7.10.2008 kl. 21:23

9 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Einhverja 400 milljarða en íslenska ríkið getur þurft að ábyrgjast 500 milljarða í Bretlandi ef Björgólfarnir fara á hausinn. Bretar verða ekki skvinir sýnist mér.

Haraldur Bjarnason, 7.10.2008 kl. 21:43

10 Smámynd: Haraldur Bjarnason

átti að vera sviknir

Haraldur Bjarnason, 7.10.2008 kl. 21:44

11 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þetta verður æ skrítnara.. hérna sögðu Bretar núna áðan að Rússar hefðu lofað Íslendingum 3bn punda láni.. en það eru 525 milljarðar á genginu 175. Tölum ber ekki saman.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 7.10.2008 kl. 21:50

12 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Hér er fullyrt að reikniseigendur séu tryggðir fyrir rúmum 16.000 pundum pr. reikning frá Icesave (Landsbankanum) með íslenska ríkið í ábyrgð. Svo sé breska ríkið ábyrgt fyrir mismuninum á 16.000 og upp að 50.000 þúsund pundum en þeir sem eigi sparifé umfram 50.000 muni missa það nema hægt sé að ganga að eigendum og ábyrgðaraðilum í gegnum lögsókn og þá á Íslandi.

Reiknaðu svo.

Svo ber fjölda reikinga engan vegin saman... -eru þeir 150.000 eða 300.000?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 7.10.2008 kl. 22:12

13 identicon

Allavega þyrfti íslenska ríkið að greiða um 400-500 miljarða Ísl. En "meinta" lánið frá Rússum hljóðar uppá 4,5 Miljarða evra, eða um 670 miljarða ísl. En eins og Davíð tók mjög skýrt fram í Kastljósi þá ætlar seðlabankinn/ríkið ekki að greiða neitt af vangoldnum skuldum bankaplebbana, spurning hvort þetta flokkist ekki sem hluti af því.

Þar talaði hann líka um að skipta bankanum þannig að íslenski hlutinn myndi standa sér og skilja hreinlega erlendu kúnnana eftir í súpunni og að fólk þar fengi aðeins lítinn hlut sparifjárs síns. Og ég er ekki frá því að það sé það eina sem hægt er að gera í stöðunni til þess að reyna að bjarga íslenskum efnahag, og svo fyndist mér líka alveg fáranlegt ef íslenska ríkið myndi eyða næstu tugum ára í að borga upp skítinn eftir Björgúlfsfeðga og aðra fyrrverandi miljarðamæringa.

Andrir (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 23:38

14 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ég er að reyna að koma þessu í samhengi hérna. www.blekpennar.com Er að leita að reiknivél.. og einhverri smá glóru í þessu öllu. Finn hvorugt í augnablikinu.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 8.10.2008 kl. 00:41

15 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Helga Guðrún ertu að leita að glóru í þessu?..........hún er engin

Hólmdís Hjartardóttir, 8.10.2008 kl. 00:48

16 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

http://blekpennar.com/?p=476 Ég er enn að reyna að fá einhvern botn í þetta. En ég er treg!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 8.10.2008 kl. 02:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband