Nú brosir Dabbi kóngur, jafnvel þótt allt sé á heljarþröm
30.9.2008 | 17:52
Það virðist sama hvort þessi ríkisstjórn gerir ekkert eða eitthvað. Krónan hrynur áfram og verðbólgan eykst með tilheyrandi kostnaði fyrir almenning í þessu landi. Lánskjaravísitalan, sú ömurlega uppfinning, æðir áfram sem aldrei fyrr. Nei þjóðnýting Dabba kóngs á Glitni virðist ekkert jákvætt hafa í för með sér og það þýðir ekkert fyrir hann að segja að þetta hafi verið ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Dabbi ræður þar öllu eins og marg oft hefur komið í ljós. Hann hefur nú náð hefndinni fram eftir að honum og hans meðreiðarsveinum tókst það ekki fyrir dómstólum. Nú er hann búinn að sparka rækilega í rassgatið á Jóni Ásgeiri og fjölda fólks sem átti eignir í Glitni. Eflaust brosir Dabbi kóngur út að eyrum núna, jafnvel þótt allt sé á heljarþröm.
Krónan veiktist um 5,3% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er alveg ótrúlega fáranlegt og virkar á mann eins og persónuleg árás Davíðs á Jón Ásgeir.
Og af hverju var Seðlabankinn að reka svona á eftir þessu?? Gaf þeim frest til 9 á mánudagsmorgun, skítalykt af þessu!
Andrir (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 19:21
einu sinni sammála enn.....og það er þolanlegt
Hólmdís Hjartardóttir, 30.9.2008 kl. 19:36
Gott viðtalið við Þorstein Má í Kastljósi í kvöld. Það skýrði ýmislegt.
Haraldur Bjarnason, 30.9.2008 kl. 20:19
Yfirhöfuð athyglisvert að fylgjast með Kastljósi og þá sérstaklega Þorsteini Má.
Hólmdís Hjartardóttir, 30.9.2008 kl. 20:28
Mái klikkar ekki frakar en fyrri daginn. Davíð gæti séð eftir því að hafa reitt hann til reiði.
Víðir Benediktsson, 30.9.2008 kl. 22:58
Maður er agndofa. Þetta er eitthvað gruggugt og ég held að við séum bara búin að sjá toppinn af ísjakanum.
Sigrún Jónsdóttir, 30.9.2008 kl. 23:32
Viðskiptaráðherra var greinilega líka í áfalli.....var kannski að gera sér grein fyrir gjörningnum eftir að hafa hlustað á Þorstein Má. Kom sýnilega af fjöllum.
Hólmdís Hjartardóttir, 1.10.2008 kl. 00:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.