Svona getur þetta verið misjafnt

Hvar liggur misskilningurinn í þessu máli eða var hann einhver því oftast eru það karlar sem eru sakaðir um svona lagað? Var misskilningurinn hjá karlinum? Þá hlýtur hann að vera hálf svekktur með niðurstöðuna. Var misskilningurinn hjá forsvarsmönnum Landspítalans? sem nú þurfa að punga út peningum af naumum fjárveitingum. Eða misskildi Hæstiréttur allt málið og dæmdi því konunni í hag? - Annars vann ég einu sinni á vinnustað þar sem góð og skemmtileg kona var. Svo hætti hún störfum. Næst þegar hún kom að heilsa upp á okkur, gömlu vinnufélaganna, sögðumst við sakna hennar og spurðum hvers vegna hún hefði hætt, þá stóð ekki á svari. "Þetta var svo líflaust hérna, þið karlarnir sýnduð ekki einu sinni kynferðislega áreitni." - Svona getur þetta nú verið misjafnt.
mbl.is Fær 800 þúsund í bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

-Hvað er gangverðið á pró gígaló í dag?

Var bara að spá í hvað hún ætti fyrir mörgum fyrir bæturnar...

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 18.9.2008 kl. 21:25

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Geturðu þefað upp einhvern taxta þarna hjá engilsöxum?

Haraldur Bjarnason, 18.9.2008 kl. 21:28

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ég gæti spurt... en ég hef alltaf fengið það frítt...  

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 18.9.2008 kl. 21:57

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

já þið verðið að komast að þessu

Hólmdís Hjartardóttir, 18.9.2008 kl. 22:03

5 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ég spurði Einsa.. sem klárlega vanrækti mig í kvöld. Hann svaraði með sínu óþolandi rólyndi (sendi mér skítaglott í kaupbæti):  -Hvað viltu borga?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 18.9.2008 kl. 22:15

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Það er alltaf verið að tala um einhverjar bísniss hugmyndir. Það er líka alltaf pláss fyrir meiri tekjur. Var bara að velta fyrir mér???

Haraldur Bjarnason, 18.9.2008 kl. 22:25

7 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

 Halli. Þú ert gersemi!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 18.9.2008 kl. 22:31

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þú gætir orðið fyrstur með þessa þjónustu á Akureyri......auglýstu  bara á blogginu

Hólmdís Hjartardóttir, 18.9.2008 kl. 22:36

9 Smámynd: Haraldur Bjarnason

...ætli Nýsköpunarsjóður atvinnulifsins aðstoði við að kynna þetta?

Haraldur Bjarnason, 19.9.2008 kl. 00:33

10 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Get ég pantað fylgdarþjónustu hér?.............Talaðu við nýsköpunarsjóð þú þarft að eiga svo mörg "outfit"

Hólmdís Hjartardóttir, 19.9.2008 kl. 00:37

11 Smámynd: Haraldur Bjarnason

...róleg þetta er ekki komið í gang....þarf að vera rekstrargundvöllur og allt það...svo er þetta spurning um hvort borgað er í handónýtum krónum, evrum eða hvort þetta verður allt talað niður eins og Dvaíð segir um krónuna. Ekki á vísan að róa í neinu núna.  

Haraldur Bjarnason, 19.9.2008 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband