Hann ökklabrotnaði

Þyrlur Gæslunnar hafa marg sannað sig að undarnförnu og vonandi að þessi gangnamaður jafni sig sem fyrst.  Hitt er annað. Málfarið hjá mbl.is Skoðum þetta: Hlaut hann opið ökklabrot og var þyrla Landhelgisgæslunnar fengin til að flytja hann á sjúkrahús. Að hljóta eitthvað er yfirleitt tengt happi; hlaut lottóvinning, hlaut happdrættisvinning...o.s.frv. Ég held að maðurinn hafi alls ekki verið heppinn að ökklabrotna. - Var ekki bara einfaldlegra að segja þarna að maðurinn hefði ökklabrotnað? 
mbl.is Gangnamaður slasaðist á afrétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Guðundur Egill. Vandinn er að lögfræðingar eru einhverjir þeir mestu málsóðar sem til eru. Þess vegna eru margar málvillur komnar inn í lög landsins.

Haraldur Bjarnason, 13.9.2008 kl. 19:01

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Sammála þér, Haraldur. "Hann ökklabrotnaði..." er betra og eðlilegra málfar. Lögfræðingastagl er eitthvað það tyrfnasta lesefni sem hægt er að hugsa sér og nafnorða- og stofnanamálfar lögfræðinga er ekki til eftirbreytni.

Lára Hanna Einarsdóttir, 13.9.2008 kl. 19:48

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Lögfræðingar tala ekki sama tungumál og aðrir.

Víðir Benediktsson, 13.9.2008 kl. 22:38

4 Smámynd: Gulli litli

Hann hlaut frítt far í bæinn..

Gulli litli, 13.9.2008 kl. 23:31

5 identicon

Ég er sammála því að þetta sé ljótt, en eiginlega ekki sammála því samt að þú hljótir lottóvinning... að hljóta finnst mér að ætti bara að notast þegar ekki er að hægt að nota sögn, betra er að segja: hann vann í lottó. Þú hlýtur stöðuhækkun. Málfarið á þessu blessaða vefmiðli er hins vegar bara alveg skelfilegt. Var að lesa áðan frétt um leik FH og Vals. Þar er haft eftir þjálfaranum að liðið hafi orðið líkt sjálfum sér...... Það versta er samt að við þriðju hverju frétt sést blogg við fréttir þar sem fólk er að finna að málfarinu. Hvað þarf til að þeir reyni að bæta sig? Ætli þeim sé bara alveg sama?

Bjarni Benedikt Gunnarsson (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 14:04

6 identicon

...."hann ökklabrotnaði" lýsir þessu samt ekki nógu vel, því miður málfarslöggurnar mínar. OPIÐ ökklabrot er annað en venjulegt ökklabrot.

 Hvernig væri að finna sér bara helli?

Leifur Finnbogason (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 20:01

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hann ökklabrotnaði og brotið var opið. Það leysir þetta.

Haraldur Bjarnason, 15.9.2008 kl. 23:37

8 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Menn "hljóta" ekki opið ökklabrot frekar en fótbrot eða hvert annað brot á limum

Haraldur Bjarnason, 15.9.2008 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband