Hvað var að þessum flugmanni?

Hvernig getur það gerst að flugvél hitti ekki á flugvöllinn á Egilsstöðum, besta flugvöll landsins, þar er ekkert sem hindrar og aðflugsbúnaður sá besti á landinu. Þetta þarf að athuga vel og ekki síst ástand flugmannsins. Sem betur fer er vítt til veggja við Egilsstaðaflugvöll en hálfur kílómetri er svoldið mikið og þá er stutt í byggð.
mbl.is Flugvél lenti utan flugbrautar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ætli hún hafi verið að varalita sig fyrir lendingu?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 12.9.2008 kl. 00:31

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Þetta var karl á miðjum aldri ef hann hefur verið að varalit sig þá skil ég þetta

Haraldur Bjarnason, 12.9.2008 kl. 00:35

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Æ fatta djókið. Ég segi flugvél í textanum...klúður...

Haraldur Bjarnason, 12.9.2008 kl. 00:36

4 identicon

Ekki dæma manninn án þess að vita öll atvik. Ýmislegt getur gerst, t.d. eldsneytisvandræði. Gott að all fór vel.

Örn Johnson (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 00:42

5 Smámynd: Valur Stefánsson

"Hvað var að þessum flugmanni?"  Samkvæmt fréttinni þá gerist þetta að kvöldi til, þá getur skyggnið verið slæmt, flugmaðurinn erlendur og þekkir kanski ekki aðstæður nógu vel. 

Dæmum ekki of fljótt.

Valur Stefánsson, 12.9.2008 kl. 00:45

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Ég dæmi hann ekki. Sagði bara að athuga þyrfti vel hvað hefði gesrt , ekki síst átand flugmannsins. Sérðu einhversstaðar dóm í því kannski hefur hann verið búinn að fljúga of lengi, þreyttur syfjaður. Þetta er alla vega undarlegt. Þetta er flugvöllur sem stórar þotur eru að lend á í allskonar veðurskilyrðum. Sá besti á landinu

Haraldur Bjarnason, 12.9.2008 kl. 00:47

7 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

  Varð að fá útrás fyrir skítahúmorinn einhvers staðar. Þetta lá bara einhvern veginn vel við höggi...   

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 12.9.2008 kl. 00:48

8 Smámynd: Haraldur Bjarnason

..skepnan þín

Haraldur Bjarnason, 12.9.2008 kl. 00:49

9 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Valur, ef þetta hefði gerst á Reykjavíkurflugvelli eða Akureyrarflugvelli? - Hvað þá, 500-700 metrar. Það er ekki allt í lagi hjá svona flugmönnum, jafnvel þó þeir séu útlendingar. Flug er jú oft á milli landa og ekki hafa allir þeir sem lent hafa á Egilsstöðumundanfarin ár lent þar áður. - Svona þarf að rannsaka vel. 

Haraldur Bjarnason, 12.9.2008 kl. 00:53

10 Smámynd: Haraldur Bjarnason

..að vísu kornakur Árni...en samt mögulegt.

Haraldur Bjarnason, 12.9.2008 kl. 00:54

11 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Skepnan mín og skepnan þín - skondinn dýragarður...

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 12.9.2008 kl. 00:55

13 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Takk fyrir þessi leyndardómsfulli E sem sendir þennan link á Austurgluggann. Þetta skýrir ýmislegt. Hann hefur aldrei náð inn á flugbrautina og lent á túninu hjá Egilsstaðbúinu. Samt svoldið skrítið.

Haraldur Bjarnason, 12.9.2008 kl. 01:11

14 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Er tollgæslan á svæðinu, þegar svona litlar rellur eru að lenda á hinum ýmsu flugvöllum (eða utan þeirra) hringinn í kringum landið?  Datt þetta bara svona í hug

Sigrún Jónsdóttir, 12.9.2008 kl. 01:22

15 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hugsaði það sama og Sigrún......Ég hef heyrt í Egilsstaðabændum og gæti trúað að þeir gætu hafa truflað manninn með hávaða.........

Hólmdís Hjartardóttir, 12.9.2008 kl. 01:25

16 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Kusurnar eru inni á kvöldin Árni, sem betur fer annars hefði hann stútað þeim. Hann hefur ekki verið með allt á hreinu, kannski á síðustu dropunum af eldsneyti, en tæplega þó. Hefur bara ekki farið eftir því sem hann átti að gera, komið of bratt niður og náði ekki inn á brautina.

Haraldur Bjarnason, 12.9.2008 kl. 01:28

17 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Sigrún og Hólmdís. Þið eruð eins og þið eruð...........

Haraldur Bjarnason, 12.9.2008 kl. 01:31

18 identicon

Haraldur alvitri, þú virðist vita allt um þetta af hverju ertu að spyrja. Á Egilsstöðum var rigning í gær, þoka og vindur. Ef þú telur það góð skilyrði til flugs þá veist þú ekki mikið.

Arnar (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 08:33

19 Smámynd: Benedikt V. Warén

Flugmaðurinn, sem lenti í þessu óhappi, hefur komið hingað nokkrum sinnum áður.  Skilyrðin voru hins vegar mjög óhagstæð, myrkur, rigning og þokuslæður í lítilli hæð. 

Meira á: http://pelli.blog.is/blog/pelli/entry/640516/

Kveðja frá Egilssttadir International Airport

Benedikt V. Warén, 12.9.2008 kl. 08:47

20 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Arnar alvitri, eins og fréttin er sett fram að hann hafi lent utan flubrautar horfði málið allt öðruvísi við. Skýringar koma hins vegar fram í athugasemd númer 13 og 22. Lestu þær og hættu skítkasti.

Haraldur Bjarnason, 12.9.2008 kl. 08:49

21 Smámynd: Benedikt V. Warén

Sigrún Jónsdóttir 

Tollurinn stendur sína plikt og rúmlega það.  Þeir eru sér í lagi góðir að rukka fyrir þjónustuna.  Hér kostar hún núna um 11.000 utan skrifstofutíma á meðan annarsstaðar er sama gjald um 3000

Sýslumaðurinn á Seyðisfirði sér um þessa innheimtu og hefur aldrei kynnt sér lögin um jafnrétti þegnanna, eða það finnst mann a.m.k.

http://pelli.blog.is/blog/pelli/entry/371185/

Benedikt V. Warén, 12.9.2008 kl. 08:55

22 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Benedikt V Warén

Mér er stórlega létt, ég meina það.

Sigrún Jónsdóttir, 12.9.2008 kl. 09:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband