Ömurlegt

Hvar er restin af ríkisstjórninni? -  Hvað segir eini málsvari almennings í þessari ríkisstjórn; Jóhanna Sigurðardóttir, við þessari svívirðilegu framkomu fjármálaráðherra? - Þetta er hreint út sagt ótrúlega svívirðilegt. - Málshöfðun - Fyrir það eitt að vilja hætta störfum vegna lélegra kjara. - Árni dýralæknir og félagar hans í ríkisstjórninni kunna hreinlega ekki að skammast sín. Eitt orð yfir þetta: ÖMURLEGT
mbl.is Ljósmæður: Uppsagnir löglegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þegar maður heldur að þessi spilltasta ríkisstjórn allra tíma hafi komist í þann aldýpsta kjallara ömurleikans sem mannlegum mætti er mögulegt - þá bora þeir sér ENNÞÁ neðar!

Ótrúlegt helvíti.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 11.9.2008 kl. 22:41

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

sammála báðum að ofan

Óskar Þorkelsson, 11.9.2008 kl. 22:43

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Í mínum huga er hér verið að beita kláru ofbeldi til að skerða borgaraleg réttindi ljósmæðra. Þetta er gert með samþykki allra ráðherra ríkisstjórnarinnar að Jóhönnu meðtalinni.

Víðir Benediktsson, 11.9.2008 kl. 22:48

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

rek´ann strax...........maðurinn er algert fífl.

Hólmdís Hjartardóttir, 11.9.2008 kl. 22:52

5 identicon

Samkvæmt mínum heimildum þá segist Jóhanna Sigurðardóttir styðja ljósmæður?

Gréta Hrund (IP-tala skráð) 11.9.2008 kl. 22:53

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Satt, Gréta, hún hefur sagt það en hvernig getur hún verið í sama klúbbi og þessi maður sem vill láta dæma konurnar fyrir það eitt að vilja ekki vinna án sanngjarnra launa? - Hún er samsek.

Haraldur Bjarnason, 11.9.2008 kl. 22:58

7 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Varirnar hreyfast - en röddin kemur frá rassgatinu.

Afsakið orðbragðið.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 11.9.2008 kl. 23:07

8 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Skil þetta Helga Guðrún. Þú þarft ekki að afsaka orðbragðið. Það er íslenskt.

Haraldur Bjarnason, 11.9.2008 kl. 23:10

9 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þetta er náttla bara gamla 'samúðarhjúkkan' í Jóku ...

Auðvitað eiga 'ljózurnar' á sömu vakt að vera nokkrum launaflokkum neðar, þó að þær sé með tveimur árum lengra sérnám í háskóla til viðbótar við hjúkrunarfræðina, sem var reyndar tvegga ára nám á iðnskólastigi þegar 'flugfreyjan' útskrifaðizt.

Ég hafði alltaf á henni álit, & oft mikið ...

Man ekki núna fyrir hvað, eða af hverju.

Steingrímur Helgason, 11.9.2008 kl. 23:16

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þetta er forkastanlegt

Ríkisstjórnin er öll ábyrg því dýralæknirinn er ekki að gera neitt, sem þau hafa ekki samþykkt

Sigrún Jónsdóttir, 12.9.2008 kl. 00:09

11 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Við erum greinilega sammála hér Haraldur, eins og oft áður. Takk fyrir þitt komment á mína síðu, ég segi líka heyr heyr fyrir þitt innlegg í þetta mál

Ég veit ekki alveg hvort ég eigi að fara niður á það plan sem Steingrímur Helgason, hér að ofan, er á...... en ætli ég geri það ekki samt. Steingrímur, ég er hjúkrunarfræðingur, og ég er með Bachelor Science gráðu úr háskóla, eftir FJÖGURRA ára háskólanám, en ekki tveggja ára iðnskólanám, sem nota bene, hjúkrunarnámið hefur aldrei verið á. Við erum ekki iðnaðarmenn, heldur sérfræðingar í því að hjúkra fólki á alls konar stöðum í þeirra lífi, bæði á spítala og utan spítala. Hagfræði, viðskiptafræði, líffræði og mörg önnur fræði eru þriggja ára háskólanám, svo það sem "ljózkurnar", sem sagt ljósmæðurnar, fara fram á, er að þeirra fyrst B's n´nám auk mastersgráðu sé metið á við það sem gengur og gerist í þjóðfélaginu. Lögfræðingar stúdera í fimm ár, læknar í sex ár til þess að verða kandídatar fyrir sérfræðinám, sjúkraþjálfarar og lyfjafræðingar í fimm ár, en allar þessar stéttir hafa mun hærri laun en ljósmæður..... eftir þeirra SEX ára háskólanám. Farðu og kíktu betur í heimildirnar þínar, það lítur út fyrir að þær þurfi að "öppdeiteras".

Annars Haraldur, aftur, flott innlegg í þessa umræðu

Lilja G. Bolladóttir, 12.9.2008 kl. 21:51

12 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Takk fyrir Lilja. Ég stend með ykkur bæði hjúkkum og ljósum og veit nákvæmlega hvers virði þessi störf eru enda notið þjónustu beggja stétta.

Haraldur Bjarnason, 12.9.2008 kl. 22:32

13 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Skil alveg hvað Lilja segir hér að ofan. Er samt algerlega með Zteina í því að fatta ekki alveg þörfina á allri þessari skólagöngu. Styð þó launakröfur þeirra að fullu enda veit ég að þær eru ekki ofaldar af kaupinu frekar en fleiri. Og aðförin að þeim núna er vitaskuld ámóta fyrirlitleg og flest það sem þessi óstjórn snertir með sínum rotna spillingarsprota.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 13.9.2008 kl. 01:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband