Tilraun sem vonandi gengur vel

Það hlaut að koma að því að strandsiglingar yrðu reyndar á ný. Vonandi er að þessar siglingar til Ísafjarðar gangi upp og Norðurlandi og Austfjörðum verði bætt við. Það er í raun allt sem mælir með strandflutningum, ekki síst núna þegar eldsneytisverð er í hæstu hæðum. Allt of miklir þungaflutningar eru á þröngum og illa undirbyggðum þjóðvegunum og svo ekki sé talað um útblásturinn frá öllum þessum bílum. Það þarf nokkuð marga trukka til að flytja einn skipsfam svo ólíku er saman að jafna hvað mengun varðar.
mbl.is Skip Eimskips sigla til Vestfjarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Tek undir þetta heishugar

Einar Örn Einarsson, 11.9.2008 kl. 17:41

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já Einar það er furðulegt að eyþjóð skuli ekki vera með reglulegar strandsiglingar. Þær eru örugglega þjóðhagslega hagkvæmar og flutningar landleiðina eru rosalega dýrir í dag. Veit af vini mínum sem keypi þokkalegan stofuskáp í Reykjavík um daginn á 60 þúsund krónur. Það kostaði 20 þúsund að flytja hann til Akureyrar. Slitið á vegunum lendir allt á ríkininu en ekkert slit er á sjónum ef siglt er, þess vegna held ég að það væri hagkvæmara fyrir ríkið að banna þungaflutninga á vegum og styrkja sjóflutninga.

Haraldur Bjarnason, 11.9.2008 kl. 21:03

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég held Haraldur, að það sé ekki nauðsynlegt að banna neitt, bara að skapa þannig umhverfi að vörur leiti úr vögnum á vegum í gáma í skipum vegna hagkvæmni í sjóflutningi. Auðvitað verður alltaf eitthvað af vörum sem þurfa að komast hratt á milli staða og geta borgað fyrir það.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 11.9.2008 kl. 22:36

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Rétt Hafsteinn

Haraldur Bjarnason, 11.9.2008 kl. 23:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband