Romero veit af Óla

Spánverjinn þekkir Íslendinga vel og segir að þeir hafi á að skipa Ólafi Stefánssyni einum besta handknattleiksmanni heims. Auðvitað er það rétt en Óli er ekki að spila stærsta hlutverkið inn á vellinum þar sem hann er tekinn úr umferð langtímum saman eins og í leiknum í morgun þegar okkar menn voru oftar en ekki einum færri. Vonandi veit hann ekki um alla hina. Þótt Óli hafi ekki verið að skora mikið, nema kannski á mikilvægum stundum þá eru það hann og Guðmundur Guðmundsson sem eru að skipuleggja hlutina. Það er málið. - Allir hinir strákarnir hafa verið að standa sig vel undir dyggri stjórn þjálfarans og fyrirliðans - Ætla rétt að vona að Rómeró átti sig ekki fyrir leik.
mbl.is Óttast ekki Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Það var líka orðið pínlega löngu kominn tími á það að hægt væri að finna lausnir á því að hann væri ekki með, eða tekinn úr umferð.

Alexander og Snorri hafa leyst það fullkomnlega.

Haraldur Davíðsson, 20.8.2008 kl. 22:03

2 identicon

Já hann þekkir Óla vel úr spænsku deildinni, og Óli sannaði nú heldur betur að hann er einn af þeim bestu í úrslitum meistaradeildarinnar þar sem hann var besti maðurinn í báðum leikjunum.

Hann gæti verið að ofmeta hlutverk Óla sem leikmanns í landsliðinu, þar sem manni finnst hann meira vera móralskur stuðningur fyrir liðið, þó svo hann komi auðvita oft sterkur inní sem leikmaður.

En Óli ætti að gera meira af því að reyna að taka þátt í leiknum þó hann sé tekinn úr umferð, það er eins og hann sætti sig bara við það.

Sammála því að Alex og Snorri hafa leyst þetta vel og ég er gríðarlega sáttur með Alex, barráttan og einbeitningin er gríðarleg og mér finnst oft eins og hann sé mesti Íslendingurinn í liðinu.

Andrir (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband