Hver leyfir löggunni að taka skírteini án dóms

Það er furðulegt að Egilsstaðalöggan skuli hafa tekið ökuskírteinið af manninum, ekki einu sinni íslenskt ökuskírteini. Auðvitað var hægt að sekta hann á staðnum og jafnvel setja hann inn ef hann gat ekki borgað eða lagt fram tryggingu. Ég veit dæmi um að menn hafi verið teknir fyrir ölvunarakstur á Egilsstöðum og óskað eftir því að skila inn skírteininu á staðnum en löggan ekki sagst mega taka við því fyrr en að undangengnum dómi. Þetta er tvískinnungur og rugl.
mbl.is Tekinn á 149 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Þeir eiga að hafa rétt til þess, því þó um erlandan mann hafi verið ar ræða þá gilda íslensk lög.

Munurinn á ölvunarakstri og hraðakstri er líklega sá að, þó þú hafir verið stöðvaður fyrir meintan ölvunarakstur þá er það ekki sannað fyrren niðurstöður prófana liggja fyrir og úrskurður dómara um lengd sviptingar. Í hraðakstri er auðvitað fyrirliggjandi mæling á staðnum um 149 km er jú bara ofsaakstur.

Þetta er einmitt það sem ég vil að lögreglan geri, fylgist með á þeim tímum sem menn telja sig öruggasta til að kittla pinnann, eins og á kvöldin og á nóttinin.

Sigurbrandur Jakobsson, 16.8.2008 kl. 11:35

2 identicon

Það var alveg rétt, að taka af honum ökuskírteinið. Átti að bíða eftir því, að hann ylli banaslysi með glæfraakstri sínum? Mín vegna hefði mátt gera bílinn líka upptækan í ríkissjóð. Menn sem geta ekki farið eftir umferðarreglunum, hafa ekkert við ökuskírteini að gera. Akstursskilyrði á íslenzkum vegum eru ekki samanburðarhæf við evrópskar hraðbrautir.

Stebbi (IP-tala skráð) 16.8.2008 kl. 12:59

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þetta er svo öfgafullt að þaðhefði getað verið Þvagleggur yfirkjáni...Annars held ég að það geti verið að þeir geti haldi skírteini frá manninum meðan hann er á landinu en held það gildi ekki i Ástralíu t.d., varla.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 16.8.2008 kl. 16:38

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

...haldið, auðvitað...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 16.8.2008 kl. 16:39

5 identicon

Lögreglan má taka skírteini af ökumönnum sem keyra of hratt, þ.e. ef þeir keyra yfir ákveðin hraða, og svo mega þeir líka núna taka skírteinið af þeim sem keyra fullir. Komið er eitthvað nýtt kerfi sem gerir þeim kleift að taka teinin.. (Evidenzer heitir það víst)

Gunnar (IP-tala skráð) 16.8.2008 kl. 17:24

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Þakka ábendingarnar. Það er ekki svo að ég sé á móti því skírteinið var tekið af karlinum, heldur hitt að mér finnst ósamræmi þarna á milli þegar menn vita upp á sig sökina og vilja afhenda skírteinið strax en löggan má ekki taka við. Síðan er kanski dæmt eftir einhverja 3-4 mánuði.

Haraldur Bjarnason, 17.8.2008 kl. 09:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband