Stjórnendur Reykjavíkurhrepps taki sig á

Allt þetta mál er til skammar og stjórnendur í Reykjavíkurhreppi ættu að taka sig saman í andlitinu. Viðurkenna mistök sín. Það eru örugglega allir tilbúnir að fyrirgefa þeim að þeir hafi látið einkahagsmuni vina og vandamanna ganga fyrir í þessu máli, út frá peningahyggju einni saman. Enginn er betur til þess fallinn í landinu en SÁÁ að hjálpa þessu fólki. SÁA hefur reynsluna, allt fagfólkið, sem aðrar þjóðir leita nú ráða hjá enda SÁÁ framarlega á heimsvísu. Húsnæðismálin verður hægt að leysa. Auk þess var tilboð SÁÁ lægra þótt peningamálin eigi ekki að vera aðalatriðið þegar um líf fólks er að tefla. Þorleifur á þakkir skildar fyrir að vekja athygli á þessu rugli.
mbl.is Vímuefnasjúklingar á götunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

sammála

Hólmdís Hjartardóttir, 7.8.2008 kl. 18:23

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þessi skrif þín Haraldur lýsa gamaldags hugsunarhætti og löngu úreltum. Auðvitað skiptir það einhverju máli að leysa vanda þessa blessaða fólks. Hinu megum við aldrei gleyma að þegar upp er staðið þá skiptir það miklu meira máli hverjir hagnast á því að leysa þenna vanda,- eða þannig!

Hvar værum við stödd ef sjálfstæðimönnum yrði meinað að hygla sínu fólki?

Árni Gunnarsson, 7.8.2008 kl. 18:28

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Árni við værum örugglega miklu betur stödd. Munum bankaeinkavæðinguna, símann, ragmagnsmálin, Síldarverkmsiðjur ríkisins os. frv..... Auðvitað er þetta gamaldags hugsunarháttur að mati þessa stuttbuxnaliðs og ég er viss um að þú ert mér sammála um þetta allt saman.

Haraldur Bjarnason, 7.8.2008 kl. 18:35

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er nú orðin spurning hve margir eigi eftir að liggja í valnum áður en Jórunn og co viðurkenna embættisglöp sín og spillingu. Þetta er sannarlega eitt hróplegasta spillingarmál síðari ára í stjórnsýslunni. Skrifaði um þetta grein fyrir nokkru, sem áhugasamir ættu að lesa HÉR.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.8.2008 kl. 18:44

5 Smámynd: Gulli litli

sammála

Gulli litli, 7.8.2008 kl. 19:24

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Kostuleg kaldhæðni örlaganna að fyrirtækið, sem BYR setti í gjaldþrot, skuli heita "Í Skilum ehf,"

Jón Steinar Ragnarsson, 7.8.2008 kl. 19:25

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

Vér andmælumzt lítt.

Steingrímur Helgason, 7.8.2008 kl. 19:28

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Því miður veit ég engin dæmi þess að pólitíkusar viðurkenni mistök sín hvað þá að þeir biðjist afsökunar.

Jóhann Elíasson, 7.8.2008 kl. 19:34

9 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Rétt Jóhann, en við getum auðvitað fyrirgefið þeim og kannski léttir það þeim byrðina þegar þau fara betur í hlutina og reyna að bjarga þessu fólki í stað þess að bíða eftir að einhverjir vinir reddi þeirra klúðri, eða eins og Jón Steinar bendir á að fyrirtækið "Í skilum" er komið í gjaldþrot. Þetta segir okkur kannski svoldið um hve ábyrg þessi einkavinafélög eru þrátt fyrir göfug nöfn og fyrirheit. - Auðvitað eigum við að andmælazt grimmt Zteingrímur.

Haraldur Bjarnason, 7.8.2008 kl. 19:50

10 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Þetta er mikil skömm á okkar velferðarsamfélagi. Ég átta mig ekki á hvað Sjálfstæðimenn eru að hugsa. Greinilega ekki mikið kapp í Jórunni, hún má vera heppin að lenda ekki í því sjálf að eiga nákomin henni í þessum sproum.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 7.8.2008 kl. 20:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband