Hvernig er þá lítið fjölmenni?

Búin að vera flott helgi hér á Akureyri og öllum til fyrirmyndar sem að hátíðarhöldum standa. Fjölmenni að fylgjast með rakettum í gær enda Akureyringar ákaflega rakkettuglaðir menn. En ég spyr mbl.is að því hvernig lítið fjölmenni er? Í textanum segir að mikið fjölmenni hafi fylgst með flugeldasýningu, hvernig er þá lítið fjölmenni?
mbl.is Fjölmenni á flugeldasýningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þeir mundu þá vonandi kalla það fámenni

Jónína Dúadóttir, 4.8.2008 kl. 09:10

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ætli lítið fjölmenni sé ekki þegar einn eða tveir eru samankomnir?

Jóhannes Ragnarsson, 4.8.2008 kl. 09:35

3 identicon

Sammála þér með helgina, frábærlega vel heppnuð hátíð. Ég var á Akureyrarvelli í gær, einstaklega skemmtileg samkunda. Miðað við fjölmennið sem ég sá get ég ímyndað mér að mikið fjölmenni þýði svo svakalega margt fólk að orðið "fjölmenni" hefði verið understatement.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 4.8.2008 kl. 11:46

4 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Trúlega "nútíma" íslenska. Þið voruð heppin á Akureyri að fá Margreti Blöndal heim aftur. Hún er að gera mikið af góðum hlutum fyrir sitt fólk þarna í höfuðborg norðursinns.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 4.8.2008 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband