Bundið slitlag frá Egilsstöðum til Reykjavíkur

Þegar nýr vegur upp úr Jökuldalnum kemst í gagnið verður hægt að aka á bundnu slitlagi frá Eglsstöðum norður um alla leið til Reykjavíkur í fyrsta skipti. Auk þess verður nýi vegurinn mun auðveldari en brattar brekkur og krappar beygjur Arnórsstaðamúlans. Sá nýi er handan Gilsár og hækkar aflíðandi upp hlíðina rétt innan Skjöldólfsstaða. Enn vantar nokkuð á að suðurleiðin frá Egilsstöðum sé lögð slitlagi og nú er komið árið 2008. Mig minnir að einhverntímann hafi ég heyrt fyrirheit um bundið slitlag á allan hringveginn árið 2000.   

22april 044 Séð niður á Jökuldal úr Arnórsstaðamúla. Myndin er tekin í apríl.


mbl.is Miklar vegaframkvæmdir á Norðausturlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hvoru megin Skjöldólfsstaða kallarðu "rétt innan"? Er það - ja, köllum það bara gróflega austan eða vestan megin? Er nýi vegurinn færður eitthvað fjær Skjöldólfsstöðum?

Lára Hanna Einarsdóttir, 23.7.2008 kl. 00:01

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hann fer upp rétt innan Skjöldólfsstaða II, ætli það sé ekki sunnan við en Héraðsmenn og Jökuldælingar nota bara tvær áttir austur og norður og síðan út og inn. Þ.e. inn til landsins(suður) og út til sjávar (norður). Nei það er komin nýr vegur aðeins lengra frá Skjöldólfsstaðabænum, þannig að þú keyrir ekki um hlaðið lengur. Þessi sem nú kemur leysir Arnórsstaðamúlann af og ekki þarf lengur að fara yfir Gilsárbrú nema þú ætlir á Efra-Dal. Hann kemur sem sagt norðan við Gilsá og liggur upp á Jökuldalsheiði og tengist við Ármótasel.

Haraldur Bjarnason, 23.7.2008 kl. 00:07

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

p.s. Norður er oftast notað um vestur. Egilsstaðabúar fara t.d. yfir Lagarfljótsbrú og "norður" í Fellabæ en fara svo í austur til baka.

Haraldur Bjarnason, 23.7.2008 kl. 00:17

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Votta sagnfræði & geometríu Haraldar kórrétta, sá þennann nýja vegaspotta austan Gilsánnar tilsýndar & kurmaði í gleði minni, vitandi að þá væri Arnórsstaðamúlapríleríið væntanlega varanlega af í næstu ferð.  Sýndist vegarspottinn væri að verða tilbúinn.

Steingrímur Helgason, 23.7.2008 kl. 00:21

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hérastubbar þekkja ekki áttir.....hvernig getur verið að út að Héraðsflóa sé í norður?

Hólmdís Hjartardóttir, 23.7.2008 kl. 02:12

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

En ég skil rétt innan við Skjöldólfsstaði

Hólmdís Hjartardóttir, 23.7.2008 kl. 02:13

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Lagarfljót rennur nánast í há - norður. Frá Egilsstöðum séð er Seyðisfjörður í austur, Fellabær í vestur. Skoðaðu landakort Hólmdís þá sérðu þetta, enda er Steingrímur búin að votta mína geometríu. Hérastubbar þekkja yfirleitt áttirnar en nota þær ekki í daglegu tali rétt eins og Hafnfirðingar notuðu ekki norður fyrr en einhver Reykvíkingur teiknaði skipulag, sem hann kallaði Norðurbæ.

Haraldur Bjarnason, 23.7.2008 kl. 06:25

8 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Hangirðu enn í því að Egilsstaðir sé nafli Austurlands? Af hverju ekki að segja að hægt sé að aka frá Fjarðabyggð, vísu að Mjóafirði undanskildum, til Reykjavíkur. Þú ert að tala um veginn norður um land. Hvað með suðurleiðina?

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 23.7.2008 kl. 11:16

9 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Elma ég geri bara ráð fyrir því að íbúar Fjarðabyggðar fari stystu leið til Reykjavíkur og fari því suðurleiðina. Það dettur engum Stöðfirðingi t.d. í hug að fara norður fyrir. Ef þú lest pistilinn þá sérðu að ég tala líka um suðurleiðina. Að talsvert vanti enn á bundið slitlag þar ennþá, þótt markmiðið hafi verið bundið slitlag á hringveginn fyrir árið 2000. - Hrepparígurinn hangir nn í þér. Hins vegar ef nafli er eitthvað sem er miðsvæðis þá eru Egilsstaðir nafli Austurlands. Þaðan ertu að sumarlagi aldrei lengur en klukkustund að keyra á alla þéttbýlisstaði frá Djúpavogi norður um til Vopnafjarðar. Enginn annar staður á Austurlandi getur boðið upp á þetta. - kveðja austur.

Haraldur Bjarnason, 23.7.2008 kl. 11:45

10 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Ekki má nú mikið. Nei það hangir enginnhrepparígur í mér, það hangir bara ekki neitt í mér. Góðar stundir kæri vinur.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 23.7.2008 kl. 16:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband