Nýjar nytjategundir við landið

Makríll í íslenskri lögsögu og það mikið af honum. Þeim fjölgar greinilega fiskitegundunum sem leita í átt til okkar. Skötuselur er líka farinn að veiðast upp við landssteina, til dæmis við Breiðafjörðinn. Hvað kemur næst og svo er spurningin hvort þetta er eitthvað sem fiskifræðingarnir voru búnir að búast við?
mbl.is Makríllinn mikil búbót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Ég las um Makrílinn í morgun Haraldur og fékk vatn í munninn. Ég keypti hann oft þegar ég bjó í Danmörku, reyktann. Makríll er algjört lostæti. Ég hlakka til þegar þeir á Sægreifanum fara að selja hann. Ég mun verða fastur kúnni, ekki spurning.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 15.7.2008 kl. 08:55

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hlynun sjávar er farin að hafa áhrif...og fikifræðingar hafa spáð breytingum vegna þess.

Hólmdís Hjartardóttir, 15.7.2008 kl. 10:55

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessir "apaheilar" á Skúlagötunni verða fljótir að kvótasetja Makrílinn.  Ég er alveg sammála Guðrúnu Þóru Makríllinn er algjört lostæti, þegar ég bjó í Noregi borðaði ég mikið af honum allavega matreiddum, ferskum, reyktum og söltuðum (svipað og"bútúngurinn" fyrir norðan í gamla daga).

Jóhann Elíasson, 15.7.2008 kl. 11:08

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Ég held Hómdís að því miður hafi fiskifræðingar ekki enn viðurkennt áhrif hlýnunar sjávar á lífríkið. Þeir virðast ekki átta sig á öllum þeim breytingum sem það hefur í för með sér. Að minnsta kosti viðurkenna þeir það ekki í verki. Þeir eru of bundnir af gömlum reiknilíkönum sínum. Sammála ykkur Guðrún Þóra og Jóhann um að makríll er frábær matfiskur, til dæmis reyktur. En Jóhann er ekki heldur fast til orða tekið að kalla þá apaheila. Annars held ég að aparnir séu oft skynsamari en mannfólkið þegar kemur að umgengni við lífríkið. Auðvitað fá fiskifræðingar skipun að ofan fyrr en síðar að setja makrílinn í kvóta. Skötuselurinn er kominn í kvóta og nú gengur hann í stórum stíl upp á grynningar. Hitti grásleppukarl í Ólafsvík um daginn sem var að landa 70 kílóum af grásleppuhrognum en 400 kílóum af skötusel. Gráslepunetin hans voru á 8-10 faðma dýpi. Hann varð að leigja kvóta fyrir "meðaflanum". Einu sinni var nú skötuselur talinn djúpsjávarfiskur hér við land.

Haraldur Bjarnason, 15.7.2008 kl. 23:02

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú, auðvitað er þetta rétt hjá þér Haraldur, þetta er móðgun við apana og biðst ég afsökunar á því og maður á ekki að vera með gífuryrði í garð annar svoleiðis er ekki málstað manns til framdráttar og gerir ekkert fyrir mann nema síður sé.

Jóhann Elíasson, 15.7.2008 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband