Skiljanlegt

Miðað við það sem kemur fram í þessari frétt þá er vel skiljanlegt að Jóna Kristín vilji taka að sér bæjarstjóradjobbið. Þetta er miklu arðvænlegra en prestsdjobbið á lélegum ríkisstarfsmannalaunum. Annars óska ég henni bara góðs gengis og vona að hún hafi í huga að Grindavík er vel statt sveitarfélag næst þegar kemur að því að semja við aðra starfsmenn bæjarins. Enda veit ég að Jóna Kristín er sanngjörn manneskja. Hún byrjaði sinn prestsferill í Neskaupstað, sem gjarnan var nefnd "Litla Moskva" í þá daga og vann þar hug og hjörtu fólks. 
mbl.is Dýr bæjarstjóri í Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Prestar eru með á bilinu hálfa til heila milljón á mánuði. Þeir taka þar að auki greiðslu fyrir öll prestverk utan hefðbundinna messa. Í stórum sóknum getur þetta verið rúmlega milljón á mánuði (prófastar og biskupar eru svo á mun hærri launum en þetta). Reyndar finnst mér skrýtið að prestar sem ríkisstarfsmenn á föstum launum hjá ríkinu geti látið fólk borga þeim sérstaklega fyrir ýmis prestverk. Löglegt er það kannski en varla siðlegt.

Daníel (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 08:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband