Banna bara svona samkomuhald

Hvernig stendur á þessu? - Allt vitlaust á Akureyri, fangageymslur fullar og mikið að gera hjá lögreglunni. - Var ekki búið að gera fyrirbyggjandi ráðstafanir? - Engum nema rígfullorðnum leyft að tjalda á tjaldstæðum. Með því bætast enn við verkefni hjá löggunni að eltast við fólk sem tjaldar á auðum svæðum, leikvöllum og fleiru. - Eru hömlurnar og höftin þá ekki að virka?

Nei það er best hjá yfirvöldum á Akureyri að banna bara svona samkomuhald, sem gæti dregið að sér snarvitlaust aðkomufólk. - Þá hlýtur málið að leysast. 


mbl.is Fangageymslur fullar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Guðmundur Egill. Ég er hjartanlega sammála þér. Með þessu bloggi mínu er ég bara að reyna að sýna fram á fáránleikann með þessum aldurstakmörkunum á tjaldstæðin. Það leysir engin vandamál, býr bara til ný. Auðvitað er fullt af góðu fólki á þeim aldri sem má ekki tjalda. Þeir eru örfáir sem koma óorði á allan hópinn. Svona hátíðir setja skemmtilegan svip á bæinn og eru góð tilbreyting. -  Akureyri er vinsæll staður og góður staður heim að sækja, það þekki ég bæði sem gestur og íbúi þar. Ef hins vegar á að halda einhver mannamót þá þarf bara að taka á vandamálum sem fylgja af skynsemi en ekki forræðishyggju og bönnum. Það skemmir bara fyrir öllum sem vilja hafa ánægju og skemmtun af þessu á heilbrigðan hátt.

Haraldur Bjarnason, 14.6.2008 kl. 10:48

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þeir gleyma að segja okkur í þessari frétt hvort óspektirnar séu af völdum "utanbæjarmanna" undir óæskilegum aldri.

Ég er alveg sammála þér að þetta eru furðulegar ráðstafanir hjá A-bæjunum með aldurstakmörk á tjaldstæðin.  Svo ætlast þessir sömu "ráðamenn"  til að fá atkvæði frá þessum óæskilegu.

Sigrún Jónsdóttir, 14.6.2008 kl. 13:29

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Það er alveg skothelt að um utanbæjarfólk er að ræða. Þarf ekkert að ræða það frekar. Sá lögguna í morgun vera skipta sér af fólki sem hafði tjaldað á óhefðbundnu svæði. Engin merki um læti og allir sáttir ef löggan hefði ekki truflað svefninn. Reyndar var tjaldið á miðju hringtorginu við Esso en ekki fyrir neinum held ég. Það hefði náttúrulega verið glæpur ef þetta fólk hefði tjaldað á tjaldsvæðinu. Eins gott að vaktin er staðin hér í bæ. Maður er að verða þjakaður af öryggi.

Víðir Benediktsson, 14.6.2008 kl. 19:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband