Segir þetta alla söguna?

Tíu útgerðir með ríflega helming kvótans. - Ætli það segi okkur í raun hverjir ráða þessum helmingi kvótans? - Eiga þessar útgerðir ekki meira eða minna hver í annarri?
mbl.is Tíu stærstu útgerðirnar með 52,5% kvótans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Ætli það séu ekki frekar fáir sem ráða yfir meirihluta kvótans? Og svo leyfir forsætisráðherrafíflið sér að tala um að með inngögnu í Evrópusambandið muni þjóðin afsala sér yfirráðum yfir fiskimiðunum. Nú getur fíflið talað um þjóðina sem eigendur þrátt fyrir að Halldór Ásgrímsson og Ceaucescu Oddsson ásamt hyski sínu hafi afhent örfáum einkavinum sínum allan fisk í hafinu kringum landið. Þjóðin hefur ekkert með fiskimiðin að gera lengur þökk sé áðurnefndum glæpamönnum og það væri bara frábært að fá allan Evrópufiskiflotann hingað til veiða og sjá þá hverjir væla hæst.

corvus corax, 26.5.2008 kl. 08:21

2 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Tek undir þetta

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 26.5.2008 kl. 12:26

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Þú þarna corvus. Þú ert alltof orðljótur fyrir minn smekk og ég frábið svona orðalag hér á minni síðu. Það er lágmark að sýna fólki kurteisi, þótt maður sé ekki sammála því. 

Haraldur Bjarnason, 26.5.2008 kl. 17:35

4 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Það er alveg víst að þjóðin á ekkert að þessum kvóta og þess vegna getum við alveg gegnið í Evrópusambandið. Það er alla vegana ekki hægt að missa það sem maður ekki á.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 26.5.2008 kl. 18:18

5 Smámynd: Víðir Benediktsson

Þeir sem fengu kvótann gefins eru flestir búnir að selja og aka nú um á tugmilljóna jeppum og eiga banka. Svo hafa þeir látið bankana sína lána öðrum til að kaupa kvóta og tekið kvótann sem veð. Þannig að tæknilega hafa þeir fengið hann aftur. Svo geta þeir selt hann aftur og keypt fleiri banka. Ítalska Mafían með sína ruslahauga í Napólí eða hvar sem það nú var eru bara eins og fermingadrengir miðað við það sem hér gerist.

Víðir Benediktsson, 26.5.2008 kl. 19:29

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nokkurn vegin svona er þetta, lýsingin hjá Víði er nokkuð nærri lagi.

Jóhann Elíasson, 27.5.2008 kl. 11:32

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Sammála ykkur Víðir og Jóhann. Svona er þetta í hnotskurn.

Haraldur Bjarnason, 27.5.2008 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband