Lífskjör landsmanna batna ekkert við þetta

Þarf Davíð þá að lifa af strípuðum seðlabankastjóralaunum? - Þetta er nú illa gert gagnvart honum, en hann er svo sem ekki einn um að hafa notið góðs af þessum sjálftökulífeyri. Ingibjörg Sólrún á hrós skilið fyrir þetta. Kannski hefur ströglið fáránlega í fréttatímum Stöðvar 2 haft einhver áhrif, hver veit. Þetta eitt og sér er hins vegar ekki nóg hjá ríkisstjórninni. Lífskjörin í landinu batna ekkert við þessa gjörð. Við fáum ekkert meira í okkar hlut þótt einhverjir fyrrum þingmenn og ráðherrar fái aðeins minna. Betra hefði verið að allur almenningur færi á sömu kjör og þeir. - Það þarf meira til - En auðvitað virkar svona aðgerð vel út á við.
mbl.is Eftirlaunalög Alþingis verða felld úr gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Held að strögglið í fréttamönnum stöðvar 2 hafi einmitt skilað þessu inn á þing, og að ef blaðamenn gerðu meira af þessu ströggli, væru stjórnmálamenn kannski að standa við eitthvað af kosningarloforðunum sem þeir gleyma svo oft  og 3 valdið færi þá að gera það sem það á að gera, en ekki bara að afgreiða drottningaviðtöl og matreiða tilkynningar frá valdsstjórninni.

Efast stórlega um að þetta frumvarp verði afgreitt, því verður vísað í nefnd og sett þar í tætarann.

Væri gaman að sjá kostnaðinn sem við greiðum orðið með hverjum þingmanni eftir nýjustu viðbótina, ráðningu aðstoðarmanna.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 12.5.2008 kl. 08:48

2 Smámynd: Víðir Benediktsson

Hver veit nema almenningur njóti góðs af? Kannski þessir aurar fari í gott málefni. Þetta er mest spurning um að eyða óréttlæti og spillinu hjá sjálftökuliðinu. Skil bara ekki tímann sem þetta þarf að taka. Stöð 2 fær stórt prik frá mér, vonandi heldur hún þessu áfram. Hingað til hafa Stjórnmálamenn, hvar í flokki sem þeir standa ekki hikað við að lofa gulli og grænum skógum treystandi á skammtímaminni kjósenda. Þessi aðferð fjölmiðla er þekkt erlendis og gefur bara góða raun. Það er ekki traustvekjandi þegar ráðherra kveinkar sér undan eigin loforðum.

Víðir Benediktsson, 12.5.2008 kl. 11:25

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þetta er fyrst og fremst prinsippmál

Hólmdís Hjartardóttir, 12.5.2008 kl. 12:51

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Mér sýnist þið öll taka undir það sem ég er að segja, hvert á sinn máta þó

Haraldur Bjarnason, 12.5.2008 kl. 14:05

5 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Nei Halli minn, almenningur á ekki eftir að njóta góðs af þessu. Það er nefnilega komið í ljós að það er ekki hægt að láta ný lög vera afturvirk, segja lögfróðir spekingar!!! Aðallinn heldur því sínum sérréttindum hér eftir sem hingað til.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 12.5.2008 kl. 22:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband