Sumardekkin já?

 

 austurl1

Jamm. - Það er víst löngu kominn tími á sumardekkin. Gallinn er bara sá að ef menn ætla að ferðast um fjallvegi Norðan- og Austanlands duga bara ekki sumardekk. Kortið frá Vegagerðinni yfir Norðausturlandið nú í hádeginu sýnir þetta ágætlega. Selfosslöggan ætlar að gefa séns til 15. maí, enda gert ráð fyrir tilliti til aðstæðna í lögum. Austfirðingar og Norðlendingar, sem ætla á Suðurlandið um hvítasunnuna sleppa því við sekt þótt þeir fari á þeim dekkjum sem í dag henta til ferða milli landshluta.


mbl.is Boðar aðgerðir gegn notkun nagladekkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Held að lög sem enginn virðir séu verri en engin lög, finnst að það eigi að afnema þetta nagladekkja ákvæði og finna aðra leið til að minnka slit á yfirborði vega, en kjánalega lagasetningu.

Svona lagaleysa dregur bara úr virðingu fyrir landslögum að mínu áliti og eru því meira til skaða en gagns.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 9.5.2008 kl. 13:11

2 Smámynd: Víðir Benediktsson

Var á sumardekkjum í allan vetur og gekk bara fínt.

Víðir Benediktsson, 9.5.2008 kl. 16:03

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Þetta er nú bara spurning um hvort menn eru að keyra um fjallvegi eða ekki Víðir og hvort það er fjórhjóladrifinn bíll eða ekki.

Haraldur Bjarnason, 9.5.2008 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband