Verða úrslitin á Akureyri? - Hvað gerir RUV ohf. nú?
6.3.2008 | 21:41
Það er ástæða til að óska vösku lið MA til hamingju með sigurinn á MH í kvöld og svo kemur í ljós annað kvöld hverjir andstæðingarnir í úrslitunum verða. - Nú stendur upp á Ríkisútvarpið að ákveða hvar úrslitaviðureignin fer fram. Akureyringar eiga í raun inni eina keppni í heimabyggð og auðvitað hlýtur Ríkisútvarp allra landsmanna að senda keppnina út frá Akureyri, enda ekkert því til fyrirstöðu tæknilega séð. Nemendur MA létu sig ekki muna um að fjölmenna á keppnina í kvöld en yfir 300 nemendur fóru suður til að fylgjast með sínu liði. - Það er jafn langt norður fyrir stjórnendur og tæknilið og nóg húspláss til að halda keppnina og taka á móti stuðningsliði aðkomuliðs.
Menntaskólinn á Akureyri kominn í úrslit | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já vona svo sannarlega að keppnin muni vera haldin á Akureyri.
Alli (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 21:51
Þarf ekki úrslitaviðureignin að far fram á "hlutlausu belti".
Benedikt V. Warén, 7.3.2008 kl. 09:09
....góður!!
Haraldur Bjarnason, 7.3.2008 kl. 12:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.