Tveggja sólarhringa aðdragandi

Í fréttum af þessum vegaskemmdum í Borgarfirði hefur komið fram að vegagerðarmenn sáu að vatn var farið að safnast þarna fyrir á laugardag. Þess vegna spyr maður; af hverju var ekkert gert áður en vatnið fór að rjúfa veginn? t.d að veita því hjá honum, eða fylgjast vel með ræsinu. Afleiðingin er lokun vegarins í á annan sólarhring með tilheyrandi kostnaði, ekki bara fyrir Vegagerðina, heldur alla þá vegfarendur sem verða fyrir töfum og aukakostnaði vegna þessa. Einhver hlýtur að vera ábyrgur og þurfa að axla ábyrgð, eins og vinsælt hefur verið að segja að undanförnu.


mbl.is Hringvegurinn lokaður í Borgarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það hefur tíðkast að fólk sé einungis ráðið upp að öxlum því er ekki hægt að ætlast til of mikils...........

Js (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 08:40

2 identicon

Á ég að trúa því að menn komist upp með að grípa ekki ínn í áður en tjónið varð svona mikið ?  fyrir hvað fá menn borgað hér...........

Hringvegurinn er enn lokaður við Svignaskarð í Borgarfirði eftir að vatnsagi rauf hann í fyrrinótt. Tjónið nemur milljónum króna.

Þar stíflaðist ræsi með fyrrgreindum afleiðingum og ætlar Vegagerðin að setja mun afkastameira ræsi í staðinn eða allt að þrefalt stærra. Auk þess þarf að flytja mikið fyllingarefni að því talið er að 200 til 300 rúmmetrar af fyllingarefni hafi skolast burtu.

Js (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 13:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband