Græðgi sem kemur niður á ferðaþjónustunni

Það er nánast orðið óhugsandi fyrir Íslending að kaupa mat eða þjónustu á þeim stöðum sem ferðamenn sækja helst. Gömlu góðu vegasjoppurnar eru það eina sem blífur. Ferðaþjónustufólk er búið að verðleggja allt svo hátt að kaupmáttur Íslendinga leyfir engan munað á ferðalögum. Mörg dæmi þar um hef ég rekist á í sumar en líka dæmi um tilboðsverð fyrir Íslendinga, sem er ágætt, en skrítið samt. Gengisþróunin hefur verið ferðaþjónustunni hagstæð síðustu ár og það átt að nægja. Hækkanirnar eru græðgi sem kemur niður á ferðaþjónustunni því útlendingum fer að ofbjóða líka.
mbl.is Kaupmáttur útlendinga hækkar verð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Útlendingum fer ekki að ofbjóða, þeim ofbýður þegar þetta ógeðslega okur mörlandans. Fleiri en einn hafa sagt mér að þeir munu ekki koma aftur. 750 kr fyrir kaffi er t.d. 50% hærra en í Sviss. Þessi fávísa græðgi á heldur betur eftir að koma niður á túrismanum. 

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 11:22

2 Smámynd: Einar Guðjónsson

Kaupmáttur '' venjulegra'' íslendinga leyfir ekki að þeir búi hér. Átta mig ekki á hvað þú átt við þegar þú segir að ferðaþjónustufólk sé búið að '' verðleggja allt svo hátt'' og að '' gengisþróunin verið ferðaþjónustunni hagstæð og það átt að nægja '' Átta mig ekki á hvað þú ert að fara.. Hér er allt innflutt og vextir 20 sinnum hærri en næstu lönd búa við. Okrað er á flutningum og samantekin ráð um verð á flestu ?

Einar Guðjónsson, 20.8.2010 kl. 12:05

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Veitingahúsamenn kvarta yfir háu áfengisverði frá Ríkinu en eru svo með 3- 400% álagningu sjálfir.

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.8.2010 kl. 12:06

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

750 kall fyrir kaffi ?  halló það eru 35 kr norskar og hér í ríkidæminu kostar kaffibolli sjaldan fyrir 20 kr.

ísland og íslendingar eru samir við sig. hrun eiður ei

Óskar Þorkelsson, 20.8.2010 kl. 14:10

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já, já svona dæmi eins og 750 kall fyrir kaffi eru til. Svo er hægt að nefna 5.000 kall fyrir fiskmáltíð, 850 fyrir bjórinn, 2.500 kall fyrir að fara ofan í jarðböðin við Mývatn og hámarkið er 1.000 kall fyrir rafmagn eina nótt á tjaldstæði í Grundarfirði, það er svipað og meðalheimili eyðir í rafmagn á hálfum mánuði. Svo eru auð vitað víða himinháar tölur um gistingu en allt þetta er þó hægt að fá á lægra verði hjá þeim sem kunna sér hóf í verðlagningu.

Haraldur Bjarnason, 20.8.2010 kl. 15:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband